Fréttir
Starfsmannablogg
Um Selasetrið
Rannsóknir / Skýrslur
Sýningar
Sela- og fuglaskoðun
Selir við Ísland
Vatnsnes
Á selaslóðum
Myndir
Tenglar
Veftré
EnglishDeutsch
 
Sr. Sigurður Norland Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Fjolnet   
Þriðjudagur, 28. mars 2006 20:41

Æviágrip
Sigurður Norlands fæddist í Hindisvík á Vatnsnesi þann 16. mars 1885. Foreldrar hans voru þau Jóhannes Sigurðsson bóndi og Helga Björnsdóttir húsfreyja í Hindisvík. Systkini Sigurðar voru Jón (1887 - 1939), Guðmundur (1890 - 1909), Jóhannes (1895 – 1977) og Guðrún Ingibjörg (1898 - 1898)

Sigurður varð stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík þann 29. júní 1907. Stuttu seinna sigldi hann út til Skotlands þar sem hann dvaldist um tíma. Þaðan fór Sigurður svo til Íslendingabyggða í Kanada. Á heimleiðinni stoppaði Sigurður í Danmörku í nokkurn tíma. Þegar hann kom heim til Íslands settist hann aftur á skólabekk, í þetta skiptið í hinum forfræga prestaskóla þaðan sem hann útskrifaðist með cand. theol. próf þann 20. júní. Sigurður, sem var 269. kandídat prestaskólans var jafnframt sá síðasti sem útskrifaðist frá þessari menntastofnun. Þann 8. október sama ár var Sigurður vígður sem aðstoðarprestur á Vopnafirði en þar dvaldi hann í eitt ár. Þá sótti hann um Tjarnarprestarkall á Vatnsnesi, á gömlum æskuslóðum, og fékk í apríl 1912. Ólíkt forverum sínum á Tjörn kaus Sigurður ekki að sitja á prestsetrinu, heldur bjó hann í Hindisvík hjá móður sinni.

Árið 1919 sagði hann Tjarnarprestakalli lausu en sótti í staðinn um Berþórshvolsprestakall. Sama ár hættir móðir hans búskap í Hindisvík og Sigurður kaupir jörðina á uppboði. Nokkrum árum seinna, eða árið 1922 sækir Sigurður aftur um Tjarnarprestakall og fær. Sigurður fékk lausn frá prestsembætti árið 1955.

Sigurður var mikill tungumálamaður. Hann talaði ensku, latínu og örlitla þýsku auk allra Norðurlandamálanna utan finnsku. Árið 1959 lauk hann B.A. prófi í grísku frá Háskóla Íslands, þá 74 ára að aldri. Sigurður var hagmæltur mjög og eftir hann liggur fjöldi kvæða. Hann var einnig duglegur við þýðingar.

Sigurður bjó í Hindisvík til æviloka, þó aðeins á sumrin síðustu árin, hann var alla tíð ókvæntur á barnlaus Hann lést í Reykjavík þann 27. maí 1971, þá  86 ára að aldri

Frumkvöðull á sviði náttúruverndar
Sigurður var mikill náttúruverndarsinni.Var hann langt á undan sínum samtíðarmönnum hvað slíkar hugsjónir varðaði, og var sérstaklega þekktur fyrir áhuga sinn á friðun sela og hvala . Upp úr 1940 lét Sigurður friða sellátrið í Hindisvík og hefur það verið friðað síðan. Ljóst er að ef ekki væri fyrir hugsjónir Sigurðar Norlands, væri Vatnsnesið ekki sú selaskoðunarparadís sem það er í dag. Vert er að taka fram að selaskoðunarstaðnum í Hindisvík hefur nú verið lokað.

Verslunarstaðurinn Hindisvík
Sigurður fékk snemma áhuga fyrir því að í Hindisvík risi þéttbýli og þarf yrði útgerðar- og umskipunarhöfn og var þar lögbundinn verslunarstaður frá árinu 1924. Allstór hluti af Hindisvíkurlandi var mældur út og gerður að kaupstaðarlóð og þar voru byggð tvö hús. Víkin sjálf var mæld, hafnarstæði skoðað og smíðuð bryggja. Aldrei varð þó úr þessum stóru áformum og er bryggjan nú orðin ónýt og jörðin í eyði.

Hrossarækt
Sigurður var mikill áhugamaður um hrossarækt og kom m.a. á fót hinu margfræga Hindisvíkurkyni.

Til baka

Síðast uppfært: Miðvikudagur, 09. desember 2009 13:05
 
 
Selasetur Íslands/Upplýsingamiðstöðin á Hvammstanga | Brekkugata 2
Sími: +354 451 2345 | GSM: + 354 898 5233 | Fax: +354 451 2356 | info[hja]selasetur.is