|
Skrifað af: Administrator
|
|
Þriðjudagur, 28. mars 2006 20:57 |
|
Heimver, útver og blönduð ver Á tímum sjósóknar á opnum bátum voru þrjár gerðir verstöðva algengar; heimver, útver og blönduð ver.
Heimver Heimver kallaðist það þegar róið var úr heimahöfn. Heimver gátu oft verið stór þar sem margbýlt var og margir bátar höfðu sameiginlegt uppsátur. Útver Útver var aftur á móti þar sem aðkomumenn gerðu út báta sína og áhafnir, oft langt að heiman. Útver voru staðsett þar sem stutt var á miðin og fiskgengd góð. Þar dvöldu oftast nokkrar áhafnir annaðhvort í verbúð eða tjöldum. Ein gerð útvera nefndist í daglegu tali viðleguver. Á sumum verstöðvum risu aldrei verbúðir þó svo að aðkomubátar réru þaðan. Í þessum tilfellum fengu áhafnir oftast inni á nágrannabæjum við uppsátrið. Viðleguver gátu verið tvenns konar, það er viðlegubátar ásamt áhöfnum og hins vegar viðleguáhafnir sem réru á heimabátum verstöðvarinnar. Blönduð ver Sumar verstöðvar voru blanda af útveri, heimveri og viðleguveri og fór þeim fjölgandi eftir því sem búseta jókst og sjópláss fór að myndast. Í Norðlendingafjórðungi er vitað um 45 útver, 6 heimver, 2 viðleguver og 20 blönduð ver.
|
|
Síðast uppfært: Fimmtudagur, 22. febrúar 2007 15:09 |