Fréttir
Starfsmannablogg
Um Selasetrið
Rannsóknir / Skýrslur
Sýningar
Sela- og fuglaskoðun
Selir við Ísland
Vatnsnes
Á selaslóðum
Myndir
Tenglar
Veftré
EnglishDeutsch
 
Búskapur og veiðar Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Administrator   
Þriðjudagur, 28. mars 2006 20:39

Ísland hefur löngum verið þekkt fyrir skjót veðrabrigði sem reyndust bændum oft erfið. Afkoma þeirra réðst að miklu leyti af því hvort veður gæfist til að vinna þau störf sem þurfti til að komast af yfir vetrartímann. Kotbúskapur og rýrar bújarðir leiddu af sér mikinn straum manna í verbúðir víða um land og allt fram á 20. öldina tíðkaðist meðal bænda að fara í ver á ákveðunum tímum árs til að draga fisk úr sjó og drýgja með því tekjur heimilisins.

Frá upphafi búsetu við Húnaflóa stundaði fólk útræði þar sem var aflavon var og að talið var til hlunninda að eiga hentugan stað til uppsáturs. Bæjum við ströndinna var því yfirleitt fundinn staður þar sem aðstaða til útræðis var góð.
 
Það voru ekki einungis bændur við sjávarsíðuna sem gerðu út skip og báta því víða þekktist að bændur inn til sveita gerðu slíkt hið sama. Áður en kauptún fóru að myndast fyrir alvöru var aðallega róið þegar vor- og sumarverkum í sveitum var lokið, það er á haustvertíð. Þó eru til heimildir um það að róið hafi verið frá Vatnsnesi á vorin fyrir slátt.

Þeir bændur sem höfðu uppsátur (góða lendingu fyrir báta) í sínu landi gátu hagnast all verulega af uppsátursgjöldunum. Vegna uppsátursgjalda fóru menn tiltölulega snemma að renna hýru auga til verstöðva, og urðu þær stærstu fljótlega í eigu kirkna, klaustra og biskupsstóla.

Hver verstöð rúmaði yfirleitt 2 – 6 báta með 4 – 12 mönnum hvern. Flestir þessara bænda réru ekki á sínum eigin bátum, heldur unnu á bátum annara fyrir pening eða aflahlut. Það var einnig mjög algeng kvöð á leiguliðum að róa á bátum landeigenda.
Oft ferðuðust menn um langan veg í vonskuveðrum, landshluta á milli til að komast á vertíð. Húnvetningar fóru t.d. margir á vetrarvertíð á Snæfellsnes langt fram á 19. öld og upp úr 1800 fóru þeir einnig að róa frá Suðurnesjum.

Til baka

Síðast uppfært: Föstudagur, 13. júní 2008 13:43
 
 
Selasetur Íslands/Upplýsingamiðstöðin á Hvammstanga | Brekkugata 2
Sími: +354 451 2345 | GSM: + 354 898 5233 | Fax: +354 451 2356 | info[hja]selasetur.is