|
Skrifað af: Fjolnet
|
|
Mánudagur, 27. mars 2006 21:50 |
|

(Hús Sigurðar Pálmasonar sem hýsir nú sýningar Selasetur Íslands)
Selasetur Íslands var stofnað formlega þann 29. apríl 2005. Að stofnunni stóðu áhugasamir einstaklingar um eflingu sjálfbærrar ferðaþjónustu í Húnaþingi vestra.
Fjármögnun Selasetrið er fjármagnað með hlutafé og styrkjum og eru hlutafjáreigendurnir nú ríflega 90 talsins, einstaklingar, fyrirtæki og félagasamtök.
Húsnæði og lóð Árið 2005 var gengið frá kaupum á tveimur fyrstu hæðunum á hinu sögufræga VSP húsi á Hvammstanga. Húsið er sérstaklega glæsilegt og vel staðsett í hjarta bæjarins. Fyrsta hæð hússins var gerð upp veturinn 2005 - 2006, og sýning opnuð þar í júní 2006. Kjallarinn var svo gerður upp veturinn eftir og ný sýning opnuð þar vorið 2007. Samhliða þessu hefur lóð setursins verið tekin í gegn og er þar komið huggulegt útisvæði.
Upplýsingamiðstöð ferðamanna og handverksbúð Selasetur Íslands gegnir hlutverki almennrar upplýsingamiðstöðvar fyrir ferðamenn. Þar geta ferðamenn fengið upplýsingar um athyglisverða áfangastaði og afþreyingu í Húnaþingi. Þar eru einnig seldir minjagripir og handverk úr héraði.
Viðurkenningar Á uppskeruhátíð ferðaþjónustunnar á Norðurlandi, þann 10. nóvember 2005 , hlaut Selasetur Íslands viðurkenningu sem áhugaverðasta nýjung ferðamála á Norðurlandi. Verðlaunin afhenti Valgerður Sverrisdóttir iðnaðar- og viðskiptaráðherra. Einnig hlaut setrið Umhverfisverðlaun Húnaþings vestra árið 2007.
Til baka
|
|
Síðast uppfært: Miðvikudagur, 09. desember 2009 13:32 |