Forsíða
Starfsmannablogg
Um Selasetrið
Rannsóknir / Skýrslur
Sýningar
Sela- og fuglaskoðun
Selir við Ísland
Vatnsnes
Á selaslóðum
Myndir
Tenglar
Veftré
EnglishDeutsch
 
Sýning Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Fjolnet   
Þriðjudagur, 28. mars 2006 20:34

Selasetur Íslands stendur fyrir fræðslu- og listsýningum allt árið um kring.

Fræðsla

Eitt af markmiðum Selaseturs Íslands er að stuðla að alhliða fræðslu um seli við Íslands. Það gerir setrið m.a. annars með sérstakri fræðslusýningu um seli og nánasta umhverfi þeirra, en þar má m.a. afla sér þekkingar um:

  • Lífshætti sela, líkamsbyggingu, kæpingu, fæðuöflun o.fl.
  • Hlunnindi, selveiðar og nýtingu selaafurða í sögulegu samhengi
  • Þjóðsögur um seli
  • Sr. Sigurð Norland frá Hindisvík, sem var frumkvöðull að friðun sela við Vatnsnes.

 

Listsýningar 

Selasetur Íslands hýsir á ári hverju metnaðarfullar listsýningar, bæði vel þekkra og minna þekktra listamanna. Árið 2007 reið listhópurinn Selína á vaðið með glæsilegri samsýningu 7 listakvenna og 2 arkitekta. Hópurinn hafði þá unnið í 2 ár að undirbúningi sýningarinnar, m.a. með rannsóknarleiðöngrum á Vatnsnes. Verkin, sem voru mjög fjölbreytt, fjölluðu m.a. um þá þjóðsagnakenndu dulúð sem oft birtist í sögnum um seli og heimkynni þeirra, samskipti manns og náttúru, hamskipti, ævintýri og þjóðsögur. Selínu skipa listakonurnar Anna Líndal, Anna Guðjónsdóttir, Anna Hallin, Bryndís Snæbjörnsdóttir, Eygló Harðardóttir, Olga Bergmann og Ólöf Nordal. Verkefnið var unnið í samvinnu við Selasetur Íslands og verkunum komið fyrir í kringum sýningargripi þess. Verkefnið tókst vel í alla staði og fékk sýningin fyrirtaks dóma gagnrýnenda.

Árið 2008 var boðið upp á sýninguna Svo lærir sem lifir - Minningarsýningu um Gunnþór Guðmundsson listamann (1. - 15. júlí) og sýningu á kríumyndum Sigríðar Sverrisdóttur (16. - júlí - 31. ágúst).

Til baka

Síðast uppfært: Miðvikudagur, 15. apríl 2009 15:03
 
 
Selasetur Íslands/Upplýsingamiðstöðin á Hvammstanga | Brekkugata 2
Sími: +354 451 2345 | GSM: + 354 898 5233 | Fax: +354 451 2356 | info[hja]selasetur.is