Fréttir
Starfsmannablogg
Um Selasetrið
Rannsóknir / Skýrslur
Sýningar
Sela- og fuglaskoðun
Selir við Ísland
Vatnsnes
Á selaslóðum
Myndir
Tenglar
Veftré
EnglishDeutsch
 
Nýting sela Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Administrator   
Þriðjudagur, 28. mars 2006 20:48

Selveiðar og verkun sels eru hluti af menningu Íslendinga, en selir hafa verið veiddir hér við land allt frá landnámstíð. Fyrr á öldum voru þeir aðallega nýttir til matar, spikið var notað sem ljósgjafi og skinnin í ýmis konar fatnað. Í dag er selurinn nær eingöngu veiddur vegna skinnanna en kjötið er að mestum hluta urðað. Skinnin eru nýtt í ýmis konar fatnað, tískuvörur og muni. Selveiðar hafa þó dregist mjög mikið saman undanfarna áratugi. Nú á dögum hefur verðmæti selsins sem aðdráttarafl fyrir ferðamenn aukist til muna, enda einstaklega skemmtileg dýr til að skoða í návígi.

Af sumum er selurinn talinn mikill vágestur þar sem hann gangi á nytjastofna og stofni laxveiðum í hættu. Einnig beri hann svo kallað selorm til nytjafisks sem feli í sér mikinn kostnaðarauka fyrir fiskvinnsluna.

Til baka

Síðast uppfært: Miðvikudagur, 28. september 2011 14:12
 
 
Selasetur Íslands/Upplýsingamiðstöðin á Hvammstanga | Brekkugata 2
Sími: +354 451 2345 | GSM: + 354 898 5233 | Fax: +354 451 2356 | info[hja]selasetur.is