|
Skrifað af: Selasetur Íslands
|
|
Miðvikudagur, 11. júní 2008 11:55 |
|
Skemmtilegur sela- og fuglaskoðunarstaður hefur nú verið byggður upp á Illugastöðum. Þar hefur verið útbúið bílastæði, lagður göngustígur (brátt hjólastólafær) og komið upp salernisaðstöðu fyrir ferðmenn. Þar er einnig að finna kaffisölu (eftir 20. júní) og tjaldstæði.
Á Illugastöðum gefst ferðamönnum tækifæri á að skoða bæði seli og fugla í einstöku umhverfi. Selur er við Illugastaði allt árið, þó heldur fækki yfir kæpingartímann (maí - byrjun júní). Göngustígur liggur niður að höfða þar sem selurinn liggur á skerjum úti fyrir. Forvitnir selir synda oft mjög nálægt ferðamönnum á þessum stað, og því oft óljóst hvort um selaskoðun eða mannaskoðun sé að ræða! Selatalningin mikla leiddi í ljós um 60 seli á Illugastöðum (25. ágúst).
Illugastaðir eru einnig frægt sögusvið Illugastaðamorðanna í Natans sögu Ketilssonar, og má enn sjá leifar af smiðju Natans þar.
Hægt er að panta leiðsögn um Illugastaði í gegnum Selasetur Íslands.
Illugastaðir eru lokaðir til 29. júní 2008 vegna æðarvarps.
Mynd: Frá Illugastöðum (Pétur Jónsson)
Til baka
|
|
Síðast uppfært: Þriðjudagur, 01. desember 2009 14:51 |