Fréttir
Starfsmannablogg
Um Selasetrið
Rannsóknir / Skýrslur
Sýningar
Sela- og fuglaskoðun
Selir við Ísland
Vatnsnes
Á selaslóðum
Myndir
Tenglar
Veftré
EnglishDeutsch
 
Áhrif sela á laxfiska Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Selasetur Íslands   
Mánudagur, 06. apríl 2009 16:16

Umræður um hversu stórt áhrif selir sem dvelja á ósasvæðum hafa á laxfiska og laxfiskaveiði manna í veiðiám hafa verið til staðar um ómunatíð. Það er ekki óalgengt að veiðifélög greiði bændum fyrir að láta fjarlægja seli í ósum, í þeirri trú að það muni leiða af sér aukinn fjöldi laxa í ánni. Þetta hefur í gegnum tíðina vakið miklar deilur á milli mismunandi hagsmunaaðila; veiðimanna annarsvegar og þeirra sem vilja nýta selaskoðun hinsvegar. Rannsóknir á þessu viðfangsefni eru af mjög skornum skammti og niðurstöður um áhrif þess að fjarlægja seli á ósasvæðum á fjölda veiddra laxa í ám skortir. Rannsóknir á áhrifum selveiða á stofnstærð sela eru einnig ófullnægjandi. 

Til að afla frekari vitneskju um áhrif sela sem dvelja á ósasvæðum á laxfiska, hefur rannsókn á vegum Veiðimálastofnunar og Selaseturs Íslands nýlega farið af stað. Skoðuð verður viðvera sela við ósasvæði í Húnaþingi vestra með því að merkja einstaka seli með útvarpsmerki. Hægt er þá að fylgjast með ferðum þessara einstaklinga inn á ósasvæðin, ásamt viðveru í hvert sinn. Fæðuöflun sela á ósasvæðum verður einnig könnuð og athugað hversu stór hluti af fæðu þeirra samanstendur af laxfiskum. Veiðimenn sem veiða í laxveiðiám Húnaþings vestra munu einnig veita upplýsingar um hlutfall selbitinna laxa.

Verkefnastjóri rannsóknar er Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. og á sumrin hafa einnig sérfræðingar, líffræðinemar ásamt sjálfboðaliðum tekið þátt í rannsókninni.

sandra1_saursyni

Sandra M. Granquist við rannsóknir

Síðast uppfært: Miðvikudagur, 02. febrúar 2011 14:58
 
 
Selasetur Íslands/Upplýsingamiðstöðin á Hvammstanga | Brekkugata 2
Sími: +354 451 2345 | GSM: + 354 898 5233 | Fax: +354 451 2356 | info[hja]selasetur.is