Fréttir
Starfsmannablogg
Um Selasetrið
Rannsóknir / Skýrslur
Sýningar
Sela- og fuglaskoðun
Selir við Ísland
Vatnsnes
Á selaslóðum
Myndir
Tenglar
Veftré
EnglishDeutsch
 
Selatalningin mikla Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Selasetur Íslands   
Miðvikudagur, 23. júlí 2008 10:33

Selatalningin mikla er talningarverkefni sem framkvæmt er við Vatnsnes og austurströnd Heggsstaðaness einu sinni á sumri, ár hvert. Talið er til skiptist í júlí og ágúst og byggir verkefnið algjörlega á þátttöku sjálfboðaliða.

Strandlengja talningarsvæðisins telur um 70 km á Vatnsnesi og um 10 km á Heggsstaðanesi. Fer talningin þannig fram að sjálfboðaliðar ganga allar fjörur á talningarsvæðinu, á seinnipartsfjöru (gefin er tímarammi tveimur tímum fyrir og eftir háfjöru). Sjálfboðaliðar fá í hendur sérstakt talningarblað þar sem þeir skrá alla seli, bæði á sjó og landi, staðsetningu þeirra og tímasetningu talningarinna.

Fyrsta talningin fór fram þann 25. ágúst 2007 og önnur þann 20. júlí 2008. Nánar má lesa um niðurstöður talninganna undir tenglunum 2007 og 2008.

Selatalningin mikla 2009 mun fara fram sunnudaginn 26. júlí næstkomandi. Mæting í Selasetrið kl. 14:30.  

Mynd: Sjálfboðaliðar að störfum

Síðast uppfært: Föstudagur, 17. apríl 2009 16:39
 
 
Selasetur Íslands/Upplýsingamiðstöðin á Hvammstanga | Brekkugata 2
Sími: +354 451 2345 | GSM: + 354 898 5233 | Fax: +354 451 2356 | info[hja]selasetur.is