Fréttir
Starfsmannablogg
Um Selasetrið
Rannsóknir / Skýrslur
Sýningar
Sela- og fuglaskoðun
Selir við Ísland
Vatnsnes
Á selaslóðum
Myndir
Tenglar
Veftré
EnglishDeutsch
 
Góð byrjun Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Selasetur Íslands   
Miðvikudagur, 12. júlí 2006 17:30

Þrátt fyrir mikla vætutíð undanfarið hafa á fjórða hundrað gesta sótt Selasetrið heim frá opnun, þar af hafa um 250 gestir skoðað sýninguna sjálfa. Í þessum tölum eru ekki taldir með þeir ríflega 200 gestir sem sóttu setrið heim á opnunardaginn sjálfan. Aðstandendur Selasetursins eru mjög ánægðir með þessa góðu aðsókn og horfa björtum augum fram í sumarið.

Nú hefur sela- og náttúruskoðunarbáturinn Áki einnig hafið reglulegar siglingar frá höfninni fyrir neðan setrið, en allar upplýsingar um þær er hægt að fá í upplýsingamiðstöð ferðamanna, sem staðsett er í anddyri Selasetursins. Íbúar sem og aðrir gestir eru hvattir til að gera sér dagamun og nýta sér þá afþreyingu og þjónustu sem boðið er upp á í Húnaþingi. Verið velkomin í Húnaþing vestra!

Mynd: Úr siglingu með Ákanum

Síðast uppfært: Miðvikudagur, 12. júlí 2006 17:31
 
 
Selasetur Íslands/Upplýsingamiðstöðin á Hvammstanga | Brekkugata 2
Sími: +354 451 2345 | GSM: + 354 898 5233 | Fax: +354 451 2356 | info[hja]selasetur.is