Fréttir
Starfsmannablogg
Um Selasetrið
Rannsóknir / Skýrslur
Sýningar
Sela- og fuglaskoðun
Selir við Ísland
Vatnsnes
Á selaslóðum
Myndir
Tenglar
Veftré
EnglishDeutsch
 
Eftirminnileg dvöl við Húnaflóann Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Selasetur Íslands   
Fimmtudagur, 06. júlí 2006 10:37

Í maí síðast liðnum var haldið námskeið um sjálfbæra og aðgengilega náttúruskoðun í Húnaþingi og á Ströndum. Námskeiðið var liður í NORCE verkefninu (www.norce.org) og var skipulagt af fulltrúum Byggðasafns Húnvetninga og Strandamanna, SSNV og Selaseturs Íslands.

Einn af fyrirlesurum námskeiðsins vars Carol Patterson, en hún er þekktur ráðgjafi á sviði sjálfbærrar ferðaþjónustu í Norður Ameríku og víðar. Í Alberta í  Kanada rekur Carol ráðgjafafyrirtækið Kalahari management (www.kalahari-online.com), en fyrirtækið gefur m.a. út fréttabréf ársfjórðungslega þar sem rædd eru athyglisverð viðfangsefniá sviði sjálfbærrar ferðaþjónustu. Hluti sumartölublaðs fréttabréfsins í ár er tileinkaður ferð Carol til Húnaflóa og upplifunum hennar af náttúru og menningu þar. Sérstaklega tekur hún fyrir heimsókn námskeiðsgesta á Illugastaði og opnun Selaseturs Íslands ásamt því að deila með lesendum reynslu sinni af íslenskum hákarli og brennivíni.

Hægt er að nálgast fréttabréfið á síðunni http://www.kalahari-online.com/sum06.pdf 

Mynd: Carol Pattersson frá Kalahari Management

Síðast uppfært: Fimmtudagur, 06. júlí 2006 11:09
 
 
Selasetur Íslands/Upplýsingamiðstöðin á Hvammstanga | Brekkugata 2
Sími: +354 451 2345 | GSM: + 354 898 5233 | Fax: +354 451 2356 | info[hja]selasetur.is