Fréttir
Starfsmannablogg
Um Selasetrið
Rannsóknir / Skýrslur
Sýningar
Sela- og fuglaskoðun
Selir við Ísland
Vatnsnes
Á selaslóðum
Myndir
Tenglar
Veftré
EnglishDeutsch
 
Fjölmenn opnunarhátíð Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Selasetur Íslands   
Mánudagur, 26. júní 2006 14:28

Í gær var Selasetur Íslands á Hvammstanga opnað með pompi og prakt. Heiðursgestir opnunarhátíðarinnar voru Hr. Einar K. Guðfinnsson sjávarútvegsráðherra og Hr Sturla Böðvarsson samgönguráðherra, en sá síðar nefndi opnaði setrið formlega með hinni sígildu borðaklippingu. Í tilefni dagsins var síðan blásið til grillveislu í boði  KS og KVH sláturhúss ehf, Vífilfells og  Emmess íss. Gestir opnunarhátíðarinnar voru á þriðja hundraðið og skemmtu sér vel í blíðskaparveðri.

 Aðstandendur Selsetursins vilja þakka öllum þeim sem lögðu hönd á plóginn kærlega fyrir ómetanlega aðstoð. Einnig ber að þakka Brauð og kökugerðinni á Hvammstanga fyrir glæsilega hátíðartertu. Verið velkomin í Selasetur Íslands.

Síðast uppfært: Mánudagur, 26. júní 2006 14:32
 
 
Selasetur Íslands/Upplýsingamiðstöðin á Hvammstanga | Brekkugata 2
Sími: +354 451 2345 | GSM: + 354 898 5233 | Fax: +354 451 2356 | info[hja]selasetur.is