|
Skrifað af: Selasetur Íslands
|
|
Föstudagur, 09. júní 2006 10:50 |
|

Nú er mikið um að vera á og við lóð Selasetursins. Verið að flytja sjávarmöl á lóðina og þegar að því er lokið verður hafist handa við að koma munum fyrir á lóðinni. Einnig eru hrepparar að störfum við að undirbúa gerð gangstéttar meðfarm lóðinni. Síðustu vikur hefur Gummi staðið í ströngu við að smíða mót og steypa upp stöpla í handriðið í upprunalegri mynd. Þetta er tímafrek vinna en nú er farið að koma smá mynd á handriðið fyrir norðan húsið.
|
|
Síðast uppfært: Föstudagur, 09. júní 2006 10:57 |