Fréttir
Starfsmannablogg
Um Selasetrið
Rannsóknir / Skýrslur
Sýningar
Sela- og fuglaskoðun
Selir við Ísland
Vatnsnes
Á selaslóðum
Myndir
Tenglar
Veftré
EnglishDeutsch
 
Selatalningin mikla 2011 Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Selasetur Íslands   
Mánudagur, 27. júní 2011 16:46

Síðan 2007 hefur farið fram árleg selatalning á svæðinu, og mun hún verða framkvæmd aftur í sumar. Selatalningin byggir algjörlega á þátttöku sjálfboðaliða og hefur áhuginn hingað til verið mikill, bæði meðal heimamanna og ferðamanna.

 Upprunalega voru bara taldir selir á Vatnsnesinu en þar sem áhugi og þátttaka hefur aukist á milli ára er síðan 2009 allt Heggstaðarnesið talið líka. Svæðið sem talið er á núna er um 100 km langt, en skipt í mörg misstór svæði og eru síðan öll svæðin talin á sama tíma.  Flestir ættu að geta fundið sér svæði við sitt hæfi, hvort sem á við fjölskyldufólk í leit að léttri göngu í fjörunni eða íþróttagarpar að leita að erfiðri gönguferð (tekið skal fram að talningin hentar ekki börn undir 5 ára og börn mega bara taka þátt í fylgd forráðamanna). Stystu svæðin verða u.þ.b. 2 km löng og þau lengstu um 7 km.

 Við hvetjum heimamenn sem aðkomumenn að taka þátt í Selatalningunni miklu.

 Talning fer fram þann 17. Júlí í ár og nauðsynlegt er að skrá þátttöku sína fyrirfram annaðhvort með því að senda tölvupóst á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

 eða með því að hringja í síma 451-2345. Nákvæm tímasetning auglýst síðar.

 

   selatalning3_small

 

Síðast uppfært: Mánudagur, 27. júní 2011 17:05
 
 
Selasetur Íslands/Upplýsingamiðstöðin á Hvammstanga | Brekkugata 2
Sími: +354 451 2345 | GSM: + 354 898 5233 | Fax: +354 451 2356 | info[hja]selasetur.is