Forsíða
Starfsmannablogg
Um Selasetrið
Rannsóknir / Skýrslur
Sýningar
Sela- og fuglaskoðun
Selir við Ísland
Vatnsnes
Á selaslóðum
Myndir
Tenglar
Veftré
EnglishDeutsch
 
Selasetrið skrifar undir samkomulag við sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Selasetur Íslands   
Þriðjudagur, 31. ágúst 2010 08:27

3_minni

Jón Bjarnason landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra og Guðmundur Jóhannesson stjórnarformaður Selaseturs Íslands við undirritun síðasta sunnudag (29. ágúst)

Selasetur Íslands og sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið hafa nú gert með sér samkomulag um að rannsóknir á sel við Ísland og verkefni honum tengd verði framvegis í umsjón Selaseturs Íslands. Rannsóknirnar verða eftir sem áður og eins og ástæða þykir til samstarfsverkefni stofnana sjávarútvegs- og landbúnaðarráðneytisins. Einnig verða kallaðir til ýmsir hagmunaðilar eftir því sem þurfa þykir. Auk rannsókna á líffræði og lífsháttum sela mun setrið m.a. rannsaka áhrif selveiða á selastofna og skoða hvort og með hvaða hætti sé rétt að setja reglur um slíkar veiðar.

Í samkomulaginu kemur einnig fram að Selasetri Íslands sé falið að skipuleggja og annast kennslu, námskeiðahald og aðra fræðslu um seli við Ísland, eftir atvikum í samstarfi við sjávarútvegs- og landbúnaðarráðnuneytið, stofnanir þess og hagsmunaaðila. Þá er gert ráð fyrir að setrið sjái um fjármál og ráðningar rannsóknamanna og annarra starfsmanna. Gert er ráð fyrir að sjávarútvegs- og landbúnaðarráðnuneytið hafi yfirumsjón með framangreindum verkefnum en að miðstöð fyrir starfsemina verði hjá Selasetri Íslands á Hvammstanga. Umfang og framkvæmd þessara verkefna byggist á að framlög fáist til þeirra á fjárlögum.

 

16_minni

Ráðherra heimsækir selaskoðunarstaðinn á Illugastöðum (Guðmundur Jóhannesson bóndi á Illugastöðum, Ársæll Daníelsson stjórnarmaður SÍ, Jón Bjarnason ráðherra, Sandra M. Granquist sérfræðingur í selarannsóknum, Hrafnhildur Ýr Víglundsdóttir framkvæmdastjóri, Kristín Jósefsdóttir stjórnarmaður SÍ, Laila Aranda Romero sjálfboðaliði í selarannsóknum, Ester Sanchez sjálfboðaliði í selarannsóknum og Ingimar Jóhannsson skrifstofustjóri landbúnaðar- og sjávarútvegsráðuneytis).,

Síðast uppfært: Þriðjudagur, 31. ágúst 2010 08:42
 
 
Selasetur Íslands/Upplýsingamiðstöðin á Hvammstanga | Brekkugata 2
Sími: +354 451 2345 | GSM: + 354 898 5233 | Fax: +354 451 2356 | info[hja]selasetur.is