|
Skrifað af: Selasetur Íslands
|
|
Föstudagur, 04. júní 2010 15:57 |
|
Í sumar mun fyrirtækið Selasigling bjóða upp á siglingar um Miðfjörð en fyrsta ferð Brimils - Jómfrúarferðin - var farin í dag, föstudaginn 4. júní. Veðrið lofaði góðu um morguninn en heldur fór að kula upp undir hádegi. Margir nýttu sér boð um að fá að fara með í jómfrúarferðina og var mikil gleði í lofti. Ekki var farið í selaskoðun í þessari ferð heldur farið stóran hring inn í Miðfjörð, rétt til að leyfa fólki að prófa bátinn og að skoða staðinn frá sjónum. Boðið verður upp á þrenns konar siglingar í sumar þ.e. sela- og náttúruskoðun, sjóstangveiði og miðnætursiglingar. Nánari upplýsignar um ferðir og verð er að fá á www.sealwatching.is eða hjá Upplýsingamiðstöðinni á Hvammstanga í síma 451 2345.
|
|
Síðast uppfært: Föstudagur, 04. júní 2010 16:04 |