Fréttir
Starfsmannablogg
Um Selasetrið
Rannsóknir / Skýrslur
Sýningar
Sela- og fuglaskoðun
Selir við Ísland
Vatnsnes
Á selaslóðum
Myndir
Tenglar
Veftré
EnglishDeutsch
 
Sumardagskrá hefst á Sjómannadag - opnun Öldur - Waves Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Selasetur Íslands   
Fimmtudagur, 03. júní 2010 14:09

ve_1257Á sjómannadaginn, 6. júní mun sumardagskrá Selaseturs Íslands hefjast með pompi og prakt, en þá opnar Anna Gunnarsdóttir textílhönnuður sýningu sína Öldur - Waves í setrinu. Verk Önnu eru unnin með aldagamalli tækni sem notuð var við körfugerð. Þráður er vafinn utan um efni hring eftir hring með miklum krafti og er verkið formað um leið. Þetta er túlkun listamannsins á þeim krafti og þeirri orku sem býr í  öldum hafsins.

Anna hefur skapað sér gott orð sem listamaður, en hún var m.a valin bæjarlistamaður Akureyrar árið 2008.

Í tilefni dagsins verður frítt inn á setrið frá kl. 14 – 17. Allir velkomnir! Sýningin stendur yfir til 20. júní.

 
 
Selasetur Íslands/Upplýsingamiðstöðin á Hvammstanga | Brekkugata 2
Sími: +354 451 2345 | GSM: + 354 898 5233 | Fax: +354 451 2356 | info[hja]selasetur.is