|
Skrifað af: Selasetur Íslands
|
|
Miðvikudagur, 06. janúar 2010 13:03 |
|
Í dag barst Selasetrinu tilkynning um að NORA (Norræna Atlantssamstarfið) muni styrkja nýtt rannsóknarverkefni á vegum Selaseturs Íslands og Hólaskóla um 150.000 DKK á árinu 2010. Verkefnið, sem er á sviði byggðarþróunar, nefnist Tilbageflyttere/Backmovers eða Heimfluttir en viðfangsefni þess er að skoða hvaða þættir þurfa að vera til staðar í dreifbýlari samfélögum til að fólk flytjist búferlaflutningum á heimaslóðir eftir langa fjarveru. Skoðuð verða valin dreifbýlissvæði á Íslandi, Noregi og Færeyjum. Stjórn verkefnisins er í höndum Selaseturs Íslands en umsjónarmaður þess er Per Åke Nilsson sem gerði sambærilega rannsókn í Svíþjóð fyrir nokkrum árum síðan

.
|
|
Síðast uppfært: Miðvikudagur, 06. janúar 2010 13:28 |