|
Skrifað af: Selasetur Íslands
|
|
Mánudagur, 09. nóvember 2009 15:01 |
|

Selasetrið er eitt 27 aðila sem tilnefndir eru til Umhverfisverðlauna Ferðamálastofu í ár, en á vef Ferðamálastofu segir:
"Tilgangur verðlaunanna er að beina athyglinni að þeim ferðamannastöðum eða fyrirtækjum í ferðaþjónustu sem sinna umhverfismálum í starfi sínu og framtíðarskipulagi. Þau geti með því orðið hvatning til ferðaþjónustuaðila og viðskiptavina þeirra að huga betur að umhverfi og náttúru og styrkja þannig framtíð greinarinnar. Verðlaunin hafa verið afhent árlega frá árinu 1995 og er þetta því í 15. skiptið."
Annað fyrirtæki úr Húnaþingi vestra er einnig tilnefnt að þessu sinni en það er ferðaþjónustan að Brekkulæk í Miðfirði. Hægt er að skoða tilnefningarnar hér.
Tilkynnt verður um verðlaunahafann þann 19. nóvember næstkomandi.
Mynd: Lambagras (Hrafnhildur Ýr Víglundsdóttir)
|
|
Síðast uppfært: Mánudagur, 09. nóvember 2009 15:13 |