Fréttir
Starfsmannablogg
Um Selasetrið
Rannsóknir / Skýrslur
Sýningar
Sela- og fuglaskoðun
Selir við Ísland
Vatnsnes
Á selaslóðum
Myndir
Tenglar
Veftré
EnglishDeutsch
 
Aukning á komum íslenskra ferðamanna í júlí Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Selasetur Íslands   
Þriðjudagur, 04. ágúst 2009 08:45

selataling_litil1

Gestatölur fyrir júlí sýna ríflega 86% fjölgun íslenskra gesta í setrið frá því í fyrra. Þetta eru ánægjulegar tölur í ljósi þess að tölur júnímánaðar höfðu sýnt ríflega 5% fækkun íslenskra gesta frá því 2008. Heildarfjölgun íslenskra gesta á það sem af er þessu ári er um 36%, en 1. ágúst höfðu alls 884 Íslendingar sótt setrið heim.

Erlendum ferðamönnum heldur áfram að fjölga en tölur fyrir júnímánuð sýna ríflega 53% aukningu frá því í júlí í fyrra. Heildarfjölgun erlendra ferðamanna á árinu er ríflega 66%, en 1. ágúst höfðu 1553 erlendir gestir sótt setrið heim.

Heildaraukning heimsókna í Selasetur Íslands það sem af er árinu er tæplega 54%, en heildargestafjöldi 1. ágúst voru 3746 gestir.

Mynd: Sjálboðaliði að skrá sig til þátttöku í Selatalningunni miklu

Síðast uppfært: Þriðjudagur, 04. ágúst 2009 08:58
 
 
Selasetur Íslands/Upplýsingamiðstöðin á Hvammstanga | Brekkugata 2
Sími: +354 451 2345 | GSM: + 354 898 5233 | Fax: +354 451 2356 | info[hja]selasetur.is