Fréttir
Starfsmannablogg
Um Selasetrið
Rannsóknir / Skýrslur
Sýningar
Sela- og fuglaskoðun
Selir við Ísland
Vatnsnes
Á selaslóðum
Myndir
Tenglar
Veftré
EnglishDeutsch
 
1019 selir taldir Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Selasetur Íslands   
Þriðjudagur, 28. júlí 2009 10:59

sjalfbodalidar1

Selatalningin mikla fór fram á sunnudaginn, en þetta er í þriðja skiptið sem selir eru taldir á þennan hátt í Húnaþingi vestra. Að þessu sinni voru sjálfboðaliðar um 45 talsins á öllum aldri, bæði innlendir og erlendir. Þeir sem lengst voru komnir var fjögurra manna fjölskylda frá Brasilíu sem hafði skipulagt ferð sína um Ísland til að geta tekið þátt í talningunni. Samtals má ætla að sjálboðaliðar hafi gengið ríflega 100 km við talninguna en talningarsvæðið sjálft var stækkað nokkuð frá fyrra ári og náði nú frá suðurenda Sigríðastaðavatns að Reykjum í Hrútafirði.


Strandlengjunni var skipt upp í 27 smærri svæði  sem öll voru gengin á sama tíma í kringum háfjöru.  Alls voru taldir  1019 selir í ár, sem verður að teljast mjög gott miðað við veðurskilyrði, en nokkuð sterkur vindur var á sumum svæðunum sem dró úr líkum á því að selir lægju uppi.  Árið 2008 voru taldir 1124 selir, en þá fór talningin fram á mesta blíðviðrisdegi ársins.


Selasetur Íslands þakkar öllum þeim sem að talningunni komu, bæði starfsfólki og sjálfboðaliðum, kærlega fyrir ómetanlega hjálp, án ykkar væri talningin ekki möguleg.

Mynd: Hluti selatalningarmanna áður en haldið er í hann.

Síðast uppfært: Þriðjudagur, 28. júlí 2009 11:11
 
 
Selasetur Íslands/Upplýsingamiðstöðin á Hvammstanga | Brekkugata 2
Sími: +354 451 2345 | GSM: + 354 898 5233 | Fax: +354 451 2356 | info[hja]selasetur.is