|
Skrifað af: Selasetur Íslands
|
|
Mánudagur, 20. júlí 2009 12:30 |
|
Selatalningin mikla fer fram sunnudaginn 26. júlí næstkomandi. Nú hefur talningarsvæðið verið stækkað (er nú ríflega 100 km) og líkt og fyrri ár vantar okkur hressa og fótfráa sjálfboðaliða á öllum aldri til að aðstoða okkur við talninguna. Taktu fjölskylduna með og njóttu húnvetnskrar náttúru til hins ítrasta. Hressing og viðurkenningarskjal fyrir alla þátttakendur að talningu lokinni. Sjálfboðaliðar mæti í afgreiðslu Selasetursins kl. 14:30. Gott er að taka með sjér sjónauka. Allir velkomnir.
|