|
Skrifað af: Selasetur Íslands
|
|
Mánudagur, 06. júlí 2009 09:58 |
|
Nýtt starfmannablogg hefur nú litið dagsins ljós en bloggari vikunnar er Sandra M. Granquist, sérfræðingur á sviði selarannsókna og starfsmaður Veiðimálastofnunar. Héðan í frá munu ný blogg vera birt vikulega á mánudögum og jafnvel oftar séu starfsmenn á bloggbuxunum. Við hvetjum ykkur til að skrifa athugasemdir eða senda okkur fyrirspurnir ef einhverjar spurningar vakna.
Meðfylgjandi er mynd af krökkunum á Bláagarði sem komu til okkar í síðustu viku og færðu okkur skemmtilegt blað með myndum og athugasemdum frá heimsókninni þeirra fyrr í sumar. Við þökkum krökkunum kærlega fyrir fallega gjöf.
Eigið góða viku á selaslóðum!
|
|
Síðast uppfært: Mánudagur, 06. júlí 2009 10:06 |