Fréttir
Starfsmannablogg
Um Selasetrið
Rannsóknir / Skýrslur
Sýningar
Sela- og fuglaskoðun
Selir við Ísland
Vatnsnes
Á selaslóðum
Myndir
Tenglar
Veftré
EnglishDeutsch
 
Flugtalning 2011 Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Selasetur Íslands   
Miðvikudagur, 16. nóvember 2011 00:00

 

Rannsóknarskýrsla : Landselstalning úr lofti árið 2011. Framvinda og niðurstöður

 

Stofnstærðarmat á landsel við Ísland

 flugtalning 2011Talningar á fjölda landsela við  Íslandsstrendur fóru fram í júlí til september síðastliðinn á vegum Selaseturs Íslands. Markmið verkefnisins var að afla upplýsinga um stöðu íslenska landselsstofnsins. Þetta er tíunda heildartalning landsela úr lofti sem hefur farið fram hérlendis, en slíkar talningar hófust árið 1980. Ekki hefur þó verið talið síðan árið 2006 og var því mjög brýnt að telja  í ár. Talningarnar fóru í ár þannig fram að flogið var yfir alla landshluta allt að þrisvar sinnum og var fjöldi sjáanlegra landsela talin í öllum látrum. Talningar fyrri ára miðuðu að því að fljúga aðeins einu sinni yfir ströndina hvert talningarár. Talningin 2011 er því sú viðamesta sem ráðist hefur verið í til þessa.

Að meðaltali sáust um 4512 landselir, en sú tala er mitt á milli talningarniðurstöðu áranna 2003 og 2006. Þrátt fyrir síminnkandi veiðar landsela benda þessar niðurstöður til þess að landselsstofninn hafi ekki rétt úr kútnum síðan árið 2003. Skýringar á því geta verið margvíslegar, meðal annars er líklegt að slysaveiðar á sel í fiskinet hafi neikvæð áhrif á landselsstofninn.

Samstarfsaðilar verkefnisins voru Veiðimálastofnun, Rannsjá, BioPol og Hafrannsóknarstofnun. Verkefnisstjóri flugtalningarverkefnisins er Sandra Granquist, starfsmaður Veiðimálastofunnar og Selaseturs Íslands, en meðverkefnastjóri og aðaltalningarmaður var Erlingur Hauksson hjá Rannsjá. Í verkefninu tóku einnig þátt Arna Björg Árnadóttir, sumarstarfsmaður Veiðimálastofunnar og Jacob Casper starfsmaður Hafró og BioPol á Skagaströnd. Verkefnið er styrkt af Verkefnasjóð Sjávarútvegsráðuneytisins.

Síðast uppfært: Miðvikudagur, 04. apríl 2012 11:11
 
 
Selasetur Íslands/Upplýsingamiðstöðin á Hvammstanga | Brekkugata 2
Sími: +354 451 2345 | GSM: + 354 898 5233 | Fax: +354 451 2356 | info[hja]selasetur.is