Forsíða
Starfsmannablogg
Um Selasetrið
Rannsóknir / Skýrslur
Sýningar
Sela- og fuglaskoðun
Selir við Ísland
Vatnsnes
Á selaslóðum
Myndir
Tenglar
Veftré
EnglishDeutsch
 
52 húfur á 52 vikum og námskeiðið "Heklaðu uppúr þér" Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Selasetur Íslands   
Þriðjudagur, 29. júní 2010 15:24

Laugardaginn 26. júní opnaði Edda Lilja Guðmundsdóttir sýningu sína 52 húfur á 52 vikum í Selasetri Íslands. Edda Lilja hafði það að markmiði að gera eina húfu á viku í eitt ár. Engar tvær húfur máttu vera eins, í þær mátti aðeins nýta garn sem hún átti í byrjun árs og allar voru hannaðar af henni sjálfri.

“Heklaðu uppúr þér” (Laugardaginn 3. júlí frá kl. 09.00 – 12:00 og 13:00 – 16:00)
Þann 3. júlí mun Edda Lilja bjóða upp á námskeið þar sem kenndar eru grunnaðferðir í hekli; fastapinnar, stuðlar, loftlykkjur, dúllur, heklað í hringi o.s.frv.  Fyrir hádegi eru kenndar grunnaðferðir í gegnum vettling en eftir hádegi ýmsar aðferðir til skrauts t.d. blóm og dúllur. Verð fyrir ½ dag er krónur 4.000 en 8.000 fyrir heilan dag. Garn er á staðnum en þátttakendur eru beðnir um að koma með heklunálar af stærð ca. 4 ½ og 3.0. Skráningarfrestur er til miðvikudagsins 30. júní á netfangið Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. eða í síma 451 2345. Hámarksfjöldi er 6 en lágmark 4. Fyrstur kemur fyrstur fær!

 
 
Selasetur Íslands/Upplýsingamiðstöðin á Hvammstanga | Brekkugata 2
Sími: +354 451 2345 | GSM: + 354 898 5233 | Fax: +354 451 2356 | info[hja]selasetur.is