Forsíða
Starfsmannablogg
Um Selasetrið
Rannsóknir / Skýrslur
Sýningar
Sela- og fuglaskoðun
Selir við Ísland
Vatnsnes
Á selaslóðum
Myndir
Tenglar
Veftré
EnglishDeutsch
 
Stofnfundur félags spendýrafræðinga Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Selasetur Íslands   
Fimmtudagur, 29. apríl 2010 13:38

 spendyrafelagStofnfundur Spendýrafélags Íslands verður haldinn í Háskóla Íslands, Öskju, föstudaginn 30. apríl kl. 17:00 í sal 128. Frumkvæði að stofnun félagsins áttu þær Sandra M. Granquist (Selasetur Íslands/Veiðimálstofnun) og Hrefna Sigurjónsdóttir (Háskóla Íslands) atferlisfræðingar, sem kölluðu saman fund á Hvanneyri í maí 2009 í því skyni að kanna áhuga vísindamanna slíkum félagsskap. Viðbrögðin létu ekki á sér standa og voru þátttakendur fundarsins um 20 talsins, en úr þeim hópi var skipuð undirbúningsnefnd sem í sátu Sandra M. Granquist, Edda Elísabet Magnúsdóttir (Fræðasetur HÍ á Húsavík) og Rán Þórarinsdóttir (Náttúrufræðistofu Austurlands). Allt áhugafólk um spendýr og spendýrarannsóknir er hjartanlega velkomið á fundinn.
Mynd: Frá fyrsta fundi hópsins á Hvanneyri í maí 2009

 
Síðast uppfært: Föstudagur, 30. apríl 2010 08:35
 
 
Selasetur Íslands/Upplýsingamiðstöðin á Hvammstanga | Brekkugata 2
Sími: +354 451 2345 | GSM: + 354 898 5233 | Fax: +354 451 2356 | info[hja]selasetur.is