Home
Staff Blog
About us
Research
Exhibitions
Wildlife watching
Seals in Iceland
Vatnsnes
Á selaslóðum
Photos
Links
Sitemap
ÍslenskaDeutsch
 
Nóg að gera
Wednesday, 09 August 2006 15:57
There are no translations available.

Þessa dagana er unnið að ýmsum frágangi á lóð Selasetursins, m.a. er verið að leggja lokahönd á gerð göngustíga um lóðina og handriðið meðfram húsinu hefur verið gert upp og skartar nú sínum upprunalega lit.

Aðsókn að Selasetrinu hefur verið góð og eru gestir þess nú orðnir um 1500 talsins, bæði innlendir og erlendir, á þeim ríflega 6 vikum sem það hefur verið opið. Þar af má áætla að á milli 1100 - 1200  manns hafi skoðað sýninguna sjálfa. Í þessum tölum eru ekki þeir hundruðir gesta sem sóttu setrið heim á sjálfan opnunardaginn.

Einnig hefur töluvert verið að gera hjá selaskoðunarbátnum Ákanum, en hann býður upp á styttri og lengri ferðir þar sem skoðaðir eru m.a. selir og fuglar. Nánari upplýsingar fást í afgreiðslu Selasetursins 451 2345 eða á This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it

 
Sjálboðaliðar við störf
Thursday, 27 July 2006 09:55
There are no translations available.

Undanfarna daga hafa sjálfboðaliðar frá alþjóðlegum sjálfboðaliðasamtökum starfað við gerð göngustíga á lóð Selasetursins, en sjálboðaliðarnir eru staddir hér á vegum Húnaþings vestra. Gerð stígana er talsverð vinna en margar hendur vinna létt verk og eru stígarnir nú farnir að taka á sig mynd.

Selasetrið þakkar sjálfboðaliðunum kærlega fyrir hjálpina og óskar þeim velfarnaðar.

Mynd: Sjálfboðaliðar við störf

 
Duglegir strákar
Sunday, 23 July 2006 14:48
There are no translations available.

Í gær komu þeir Elmar Örn og Daníel Ingi færandi hendi og gáfu Selasetrinu pening sem þeir höfðu safnað með því að týna fallega muni úr fjörunni og selja gestum og gangandi. Aðstandendur Selasetursins þakka strákunum kærlega fyrir rausnarlega gjöf og vona að þeir hafi það sem allra best í sumar.

Fyrr í sumar gaf Rakel Ósk setrinu fallega styttu sem hún bjó til á vordögum í skólanum. Styttan sómir sér vel við hlið Kobba kóps í glugga upplýsingamiðstöðvarinnar og eru þau í fullri vinnu við að taka á móti gestum. Þökkum við Rakel kærlega fyrir gjöfina.

Mynd: Daníel Ingi og Elmar Örn

 
<< Start < Prev 31 32 33 34 35 36 37 Next > End >>

Page 31 of 37
 
Selasetur Íslands/Upplýsingamiðstöðin á Hvammstanga | Brekkugata 2
Sími: +354 451 2345 | GSM: + 354 898 5233 | Fax: +354 451 2356 | info[hja]selasetur.is