Home
Staff Blog
About us
Research
Exhibitions
Wildlife watching
Seals in Iceland
Vatnsnes
Á selaslóðum
Photos
Links
Sitemap
ÍslenskaDeutsch
 
52 húfur á 52 vikum og námskeiðið "Heklaðu uppúr þér"
Tuesday, 29 June 2010 15:24
There are no translations available.

Laugardaginn 26. júní opnaði Edda Lilja Guðmundsdóttir sýningu sína 52 húfur á 52 vikum í Selasetri Íslands. Edda Lilja hafði það að markmiði að gera eina húfu á viku í eitt ár. Engar tvær húfur máttu vera eins, í þær mátti aðeins nýta garn sem hún átti í byrjun árs og allar voru hannaðar af henni sjálfri.

“Heklaðu uppúr þér” (Laugardaginn 3. júlí frá kl. 09.00 – 12:00 og 13:00 – 16:00)
Þann 3. júlí mun Edda Lilja bjóða upp á námskeið þar sem kenndar eru grunnaðferðir í hekli; fastapinnar, stuðlar, loftlykkjur, dúllur, heklað í hringi o.s.frv.  Fyrir hádegi eru kenndar grunnaðferðir í gegnum vettling en eftir hádegi ýmsar aðferðir til skrauts t.d. blóm og dúllur. Verð fyrir ½ dag er krónur 4.000 en 8.000 fyrir heilan dag. Garn er á staðnum en þátttakendur eru beðnir um að koma með heklunálar af stærð ca. 4 ½ og 3.0. Skráningarfrestur er til miðvikudagsins 30. júní á netfangið This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it eða í síma 451 2345. Hámarksfjöldi er 6 en lágmark 4. Fyrstur kemur fyrstur fær!

 
Boat trips from Hvammstangi harbour
Friday, 04 June 2010 15:57

The brand new company Sealwatching from sea will offer boat trips on Miðfjörður fjord. Brimill (the boat) had its first trip today on the 4th of June. The company will offer seal- and nature watching tours, sea angling tours and midnight sun tours. More information about the tours, prices and more can be found at www.sealwatching.is or at Hvammstangi Visitor Centre + 354 4512345.

 
Sumardagskrá hefst á Sjómannadag - opnun Öldur - Waves
Thursday, 03 June 2010 14:09
There are no translations available.

ve_1257Á sjómannadaginn, 6. júní mun sumardagskrá Selaseturs Íslands hefjast með pompi og prakt, en þá opnar Anna Gunnarsdóttir textílhönnuður sýningu sína Öldur - Waves í setrinu. Verk Önnu eru unnin með aldagamalli tækni sem notuð var við körfugerð. Þráður er vafinn utan um efni hring eftir hring með miklum krafti og er verkið formað um leið. Þetta er túlkun listamannsins á þeim krafti og þeirri orku sem býr í  öldum hafsins.

Anna hefur skapað sér gott orð sem listamaður, en hún var m.a valin bæjarlistamaður Akureyrar árið 2008.

Í tilefni dagsins verður frítt inn á setrið frá kl. 14 – 17. Allir velkomnir! Sýningin stendur yfir til 20. júní.

 
<< Start < Prev 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Next > End >>

Page 4 of 37
 
Selasetur Íslands/Upplýsingamiðstöðin á Hvammstanga | Brekkugata 2
Sími: +354 451 2345 | GSM: + 354 898 5233 | Fax: +354 451 2356 | info[hja]selasetur.is