Home
Staff Blog
About us
Research
Exhibitions
Wildlife watching
Seals in Iceland
Vatnsnes
Á selaslóðum
Photos
Links
Sitemap
ÍslenskaDeutsch
 
Stofnfundur félags spendýrafræðinga
Thursday, 29 April 2010 13:38
There are no translations available.


 spendyrafelagStofnfundur Spendýrafélags Íslands verður haldinn í Háskóla Íslands, Öskju, föstudaginn 30. apríl kl. 17:00 í sal 128. Frumkvæði að stofnun félagsins áttu þær Sandra M. Granquist (Selasetur Íslands/Veiðimálstofnun) og Hrefna Sigurjónsdóttir (Háskóla Íslands) atferlisfræðingar, sem kölluðu saman fund á Hvanneyri í maí 2009 í því skyni að kanna áhuga vísindamanna slíkum félagsskap. Viðbrögðin létu ekki á sér standa og voru þátttakendur fundarsins um 20 talsins, en úr þeim hópi var skipuð undirbúningsnefnd sem í sátu Sandra M. Granquist, Edda Elísabet Magnúsdóttir (Fræðasetur HÍ á Húsavík) og Rán Þórarinsdóttir (Náttúrufræðistofu Austurlands). Allt áhugafólk um spendýr og spendýrarannsóknir er hjartanlega velkomið á fundinn.
Mynd: Frá fyrsta fundi hópsins á Hvanneyri í maí 2009

 
 
Aðalfundur Selaseturs Íslands
Tuesday, 27 April 2010 12:25
There are no translations available.

adalfundur_2010_4Aðalfundur Selaseturs Íslands var haldinn í Dæli þann 20. apríl síðastliðinn. Á dagskrá voru hefðbundin aðalfundarstörf. Framkvæmdastjóri kynnti skýrslu stjórnar fyrir árið 2009 og Ársæll Daníelsson fór yfir ársreikninga. Að því loknu var stjórn setursins endurkjörin en hana skipa Guðmundur Jóhannesson stjórnarformaður, Ársæll Daníelsson varastjórnarformaður, Sigrún Björk Valdimarsdóttir ritari, Jóhannes Erlendsson meðstjórnandi og Kristín Jósefsdóttir meðstjórnandi. Varamenn eru þær Katharina Ruppel og Helena Svanlaug Sigurðardóttir.Þeir sem hafa áhuga á að kynna fundargerð aðalfundarins eða skoða ársreikninga setursins fyrir árið 2009 er bent á að hafa samband við framkvæmdastjóra í gegnum póstfangið This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it eða í síma 451 2345.

 

Mynd: Stjórn Selaseturs Íslands (f.v) Ársæll Daníelsson, Sigrún B. Valdimarsdóttir, Kristín Jósefsdóttir, Katharina Ruppel, Guðmundur Jóhannesson og Jóhannes Erlendsson. Á myndina vantar Helenu Svanlaugu Sigurðardóttir.

 

 
Vel heppnaður fræðsludagur
Tuesday, 27 April 2010 12:13
There are no translations available.

radherra_litilDagur húnvetskrar náttúru var haldinn að Gauksmýri þann 10. apríl síðastliðinn, en þar komu saman fræðimenn víðs vegar að af landinu og kynntu rannsóknir sýnar á náttúrufari Húnavatnssýslna. Gestir dagsins voru alls um 60 talsins. Sérstakur gestur var Svanhvít Svavarsdóttir umhverfisráðherra sem ávarpaði gesti í upphafi dags. Að fræðsluerindum loknum buðu Selasetrið og Náttúrustofa Norðurlands vestra til móttöku í Selasetrinu í tilefni 5 ára afmælis setursins og 10 ára afmælis Náttúrustofunnar á þessu ári.

Skipuleggjendur vilja koma þökkum á framfæri til styrktaraðila dagsins sem voru Vaxtarsamningur Norðurlands vestra, Húnaþing vestra, Húnavatnshreppur, Blönduósbær, sveitarfélagið Skagaströnd, Skagabyggð, Sláturhús SKVH á Hvammstanga, Léttitækni, SSNV, Landsvirkjun og Vörumiðlun.

 

 

 

 

Mynd: Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra ávarpar gesti á Degi húnvetnskrar náttúru.

 
<< Start < Prev 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Next > End >>

Page 5 of 37
 
Selasetur Íslands/Upplýsingamiðstöðin á Hvammstanga | Brekkugata 2
Sími: +354 451 2345 | GSM: + 354 898 5233 | Fax: +354 451 2356 | info[hja]selasetur.is