Home
Staff Blog
About us
Research
Exhibitions
Wildlife watching
Seals in Iceland
Vatnsnes
Á selaslóðum
Photos
Links
Sitemap
ÍslenskaDeutsch
 
Áhrif ferðamanna á hegðun sela PDF Print E-mail
Written by Selasetur Íslands   
Wednesday, 02 February 2011 14:35
There are no translations available.

Á Illugastöðum á Vatnsnesi hefur verið komið upp aðstöðu til selaskoðunar af landi. Þar hefur Selasetur Íslands, í samvinnu við landeigendur, hrundið af stað rannsókn þar sem ætlað er að kanna áhrif aukins fjölda ferðamanna á seli.

Verkefnið hefur staðið yfir síðan 2008. Bein áhrif ferðamanna á hegðun sela í látrinu er skoðuð með tilliti til meðal annars hvort fjöldi ferðamanna og/eða hegðun þeirra að selaskoðunarstaðnum geti haft áhrif á fjölda sela í látrinu sem og hegðun þeirra.

Samhliða rannsókn fer fram í Hindisvík á Vatnsnesi, en Hindisvík hefur verið lokuð ferðamönnum síðan 2008. Reglulegar talningar er nú framkvæmdar til þess að kanna hvort fjöldi sela muni aukast í latrínu á næstkomandi árum, þar sem þeir fá nú algjöran frið frá ferðamönnum.

Rannsóknin er unnin á vegum The Wild North, sem er norrænt samstarfsverkefni þar sem áhersla er lögð á sjálfbæra þróun náttúrutengdrar ferðaþjónustu. svipuð rannsóknarverkefni fara einnig fram við Fræðasetur Háskóla Íslands á Húsavík (áhrif ferðamennsku á hvali), Náttúrustofu Norðurlands vestra (áhrif ferðamennsku á fugla), og á Melrakkasetrinu á Vestfjörðum (áhrif ferðamennsku á refi), ásamt stofnunum í öðrum þátttökulöndum The Wild North.

Verkefnastjóri rannsóknarinnar er Sandra M. Granquist og á sumrin hafa einnig sérfræðingar, líffræðinemar ásamt sjálfboðaliðum tekið þátt í rannsókninni.

 
 
Selasetur Íslands/Upplýsingamiðstöðin á Hvammstanga | Brekkugata 2
Sími: +354 451 2345 | GSM: + 354 898 5233 | Fax: +354 451 2356 | info[hja]selasetur.is