Home
Staff Blog
About us
Research
Exhibitions
Wildlife watching
Seals in Iceland
Vatnsnes
Á selaslóðum
Photos
Links
Sitemap
ÍslenskaDeutsch
 
Selasetur Íslands - The Icelandic Seal Center
Flugtalning 2011 PDF Print E-mail
Written by Selasetur Íslands   
Wednesday, 16 November 2011 00:00

 

 

Stofnstærðarmat á landsel við Ísland

 

flugtalning 2011Talningar á fjölda landsela við  Íslandsstrendur fóru fram í júlí til september síðastliðinn á vegum Selaseturs Íslands. Markmið verkefnisins var að afla upplýsinga um stöðu íslenska landselsstofnsins. Þetta er tíunda heildartalning landsela úr lofti sem hefur farið fram hérlendis, en slíkar talningar hófust árið 1980. Ekki hefur þó verið talið síðan árið 2006 og var því mjög brýnt að telja  í ár. Talningarnar fóru í ár þannig fram að flogið var yfir alla landshluta allt að þrisvar sinnum og var fjöldi sjáanlegra landsela talin í öllum látrum. Talningar fyrri ára miðuðu að því að fljúga aðeins einu sinni yfir ströndina hvert talningarár. Talningin 2011 er því sú viðamesta sem ráðist hefur verið í til þessa.

Að meðaltali sáust um 4512 landselir, en sú tala er mitt á milli talningarniðurstöðu áranna 2003 og 2006. Þrátt fyrir síminnkandi veiðar landsela benda þessar niðurstöður til þess að landselsstofninn hafi ekki rétt úr kútnum síðan árið 2003. Skýringar á því geta verið margvíslegar, meðal annars er líklegt að slysaveiðar á sel í fiskinet hafi neikvæð áhrif á landselsstofninn.

Samstarfsaðilar verkefnisins voru Veiðimálastofnun, Rannsjá, BioPol og Hafrannsóknarstofnun. Verkefnisstjóri flugtalningarverkefnisins er Sandra Granquist, starfsmaður Veiðimálastofunnar og Selaseturs Íslands, en meðverkefnastjóri og aðaltalningarmaður var Erlingur Hauksson hjá Rannsjá. Í verkefninu tóku einnig þátt Arna Björg Árnadóttir, sumarstarfsmaður Veiðimálastofunnar og Jacob Casper starfsmaður Hafró og BioPol á Skagaströnd. Verkefnið er styrkt af Verkefnasjóð Sjávarútvegsráðuneytisins.

 

Last Updated on Wednesday, 16 November 2011 15:17
 
Kampselur PDF Print E-mail
Written by Selasetur Íslands   
Wednesday, 05 October 2011 20:41
There are no translations available.

 

Kampselur sem kom í heimsókn inn í Sigríðarstaðavatn í ágúst síðastliðinn

 

kambselur

Kampselur sem kom í heimsókn inn í Sigríðarstaðavatn í ágúst síðastliðinn. Hann velti sér stöku sinnum í vatninu eins og hann væri að eltast við fisk. Þess á milli settist hann á grynningar og lá hálfan tíma eða meira á hverjum stað. Sérkennilegt að sjá hann flatmaga í grunnu vatninu um 3-4 m frá háum bökkum og horfa til lands. Myndirnar tók Sunna Njálsdóttir á leið sinni frá bústað sínum í Vestur-Hópi niður eftir tanganum og komst hún í svona 60 m fjarlægð. við hjá Selasetrinu þökkum henni kærlega fyrir myndina. 

 

Last Updated on Friday, 04 November 2011 10:55
 
Ný starfsmannablogg! PDF Print E-mail
Written by Selasetur Íslands   
Thursday, 01 September 2011 10:16
There are no translations available.

Ný starfsmannablogg undir tenglinum „Starfsmannablogg“ hér til hliðar. Í þetta sinn blogga líffræðingarnar Elsa  Freschet frá Frakklandi og Eva Haunss frá Þýskalandi um þeirra rannsóknarstarfsemi hjá Selasetrinu sumarið 2011.
 
Opnun Sýningar í Nýju húsnæði PDF Print E-mail
Written by Selasetur Íslands   
Tuesday, 06 September 2011 20:46
There are no translations available.

dsc_0018Flutningur safns Selaseturs Íslands í nýtt og betra húsnæði.

Sýningaraðstaða og rannsóknarstofa

Selasetrið hefur flutt safn Selaseturs Íslands í nýtt og glæsilegt sýningarými sem er staðsett í húsnæði Kaupfélags Vestur Húnvetninga (KVH) niður við Hvammstangahöfn. Sýninguna hannaði Steinþór Sigurðsson leikmyndahönnuður ásamt Pétri Jónssyni. Í sama húsnæði er einnig ný rannsóknaraðstaða sem er nýtt við líffræðilegar rannsóknir á sel .

Selasetrinu gefst tækifæri til að sýna betur þá muni sem safnið hefur til sýninga. Hið nýja húnsæði er bylting fyrir Selasetrið í því að taka á móti hópum af ferðamönnum/gestum og nú getur setrið betur sinnt fræðslu og kynningu.

Safn Selasetursins er eina selasafnið hér á Íslandi og það leggur metnað sinn í það að varðveita sögu og menningu tengda selveiðum, nýtingu þeirra og gildi þeirra í sögum til forna. 

Markmiðið með þessu nýja safni er að gera safnið eftirminnilegra fyrir þau mörg þúsund gesti sem það sækja á hverju ári, ásamt því að auka þann fjölda ferðamanna sem heimsækja safnið. Upplýsingar um fjölda ferðamanna á Vatnsnesinu og áhugi erlendra ferðamanna á selnum og náttúrutengdri ferðaþjónustu gefur glöggt til kynna að mikilvægt er að hafa öflugt og gott safn sem veitir vitneskju um þá menningu og siði sem fylgdu selnum og selveiðum, auk annarrar almennrar fræðslu um þessi áhugaverðu dýr.

Ýmsar nýungar eru að finna í nýja safninu okkar. Við  erum við  með bíósal þar sem hægt er að horfa á fræðsluþætti um seli , eins verður hægt að nýta salinn sem fyrirlestrarsal o.fl .

Við erum með sér sér deild um selveiðar og hægt er að fylgjast með rannsóknarmönnum að störfum í gegnum gler inni á rannsóknarstofuna svo eitthvað sé nefnt. 

Einnig gefst okkur kostur á að starfrækja enn betri upplýsingamiðstöð ferðamanna ásamt glæsilegri verslun með minjagripi og fleiru.

Verið hjartanlega velkomin til okkar.

Last Updated on Thursday, 15 September 2011 20:54
 
1033 selir taldir í Selatalninguna mikla PDF Print E-mail
Written by Selasetur Íslands   
Monday, 18 July 2011 10:34
There are no translations available.

Selatalningin mikla var haldin í fimmta árið í röð í gær, sunnudagurinn 17. júlí. Í ár voru alls 1033 selir taldir á Heggstaðarnesi og Vatnsnesi og eru það heldur færri en í fyrra því þá var niðurstaðan 1057 selir. Eins og fyrri ár var talningin framkvæmd af sjálfboðaliðum ásamt starfsfólki Selasetursins. Í ár tóku um 30 manns þátt í að telja seli á 27 svæðum og fóru þeir gangandi, á hesti og á bát. Að talningu lokinni var boðið upp á kaffi í á Selasetrinu.

Þökkum öllum talningarmönnum og aðstoðarmönnum kærlega fyrir og vonumst til þess að sjá öllum aftur að ári!

 Sandra_kikir_small

Mynd: Frank Bradford

Last Updated on Monday, 18 July 2011 10:42
 
<< Start < Prev 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Next > End >>

Page 1 of 24
 
Selasetur Íslands/Upplýsingamiðstöðin á Hvammstanga | Brekkugata 2
Sími: +354 451 2345 | GSM: + 354 898 5233 | Fax: +354 451 2356 | info[hja]selasetur.is