Home
Staff Blog
About us
Research
Exhibitions
Wildlife watching
Seals in Iceland
Vatnsnes
Á selaslóðum
Photos
Links
Sitemap
ÍslenskaDeutsch
 
Dagur húnvetnskrar náttúru PDF Print E-mail
Written by Selasetur Íslands   
Tuesday, 06 April 2010 11:46
There are no translations available.

 

nnv-selasetur-300x138Fræðsludagur um náttúrufar Húnavatnssýslna verður haldinn á Gauksmýri á vegum Náttúrustofu Norðurlands vestra og Selaseturs Íslands laugardaginn 10. apríl næstkomandi.

Skúli Þórðarson sveitarstjóri Húnaþings vestra mun setja fræðsludaginn og Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra mun að því loknu flytja gestum ávarp. Í kjölfarið hefst fyrirlestraröð sem mun standa yfir daginn. Þar verður komið víða við á ýmsum sviðum er lúta að náttúrufari Húnvatnssýslna.

Fyrirlestrar verða stuttir (15 mín. hver) og verður kaffisopinn aldrei langt undan.

Fyrirlestrar verða haldnir að Gauksmýri í Línakradal í Húnaþingi vestra. Að fyrirlestrahaldi loknu verður boðið upp á veitingar í boði Selaseturs Íslands og Náttúrustofu Norðurlands vestra í húsnæði Selaseturs Íslands Brekkugötu 2, Hvammstanga og fimm ára afmælis Selasetursins og 10 ára afmæli Náttúrustofu Norðurlands vestra verður fagnað (aðeins fyrir ráðstefnugesti).

Formleg dagskrá fræðsludagsins hefst kl. 9:30 og lýkur kl. 17:00
Athugið að þátttakendum verður boðið upp á súpu í matarhléi þeim að kostnaðarlausu. Við viljum biðja þá sem það vilja þiggja að senda tilkynningu á netfangið This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it eða hringja í síma 453-7999 fyrir miðvikudagskvöldið 7. apríl næstkomandi. 

Viðburðinn styrkja sveitarfélög í Húnavatnssýslum, SSNV, Vörumiðlun, Léttitækni, Sláturhús SKVH og Vaxtarsamningur Norðurlands vestra. 

Sjá dagskrá fræðsludagsins hér. 

 

 
 
Selasetur Íslands/Upplýsingamiðstöðin á Hvammstanga | Brekkugata 2
Sími: +354 451 2345 | GSM: + 354 898 5233 | Fax: +354 451 2356 | info[hja]selasetur.is