|
Written by Selasetur Íslands
|
|
Wednesday, 12 July 2006 17:30 |
|
There are no translations available.
Þrátt fyrir mikla vætutíð undanfarið hafa á fjórða hundrað gesta sótt Selasetrið heim frá opnun, þar af hafa um 250 gestir skoðað sýninguna sjálfa. Í þessum tölum eru ekki taldir með þeir ríflega 200 gestir sem sóttu setrið heim á opnunardaginn sjálfan. Aðstandendur Selasetursins eru mjög ánægðir með þessa góðu aðsókn og horfa björtum augum fram í sumarið.
Nú hefur sela- og náttúruskoðunarbáturinn Áki einnig hafið reglulegar siglingar frá höfninni fyrir neðan setrið, en allar upplýsingar um þær er hægt að fá í upplýsingamiðstöð ferðamanna, sem staðsett er í anddyri Selasetursins. Íbúar sem og aðrir gestir eru hvattir til að gera sér dagamun og nýta sér þá afþreyingu og þjónustu sem boðið er upp á í Húnaþingi. Verið velkomin í Húnaþing vestra! Mynd: Úr siglingu með Ákanum
|
|
Last Updated on Wednesday, 12 July 2006 17:31 |