|
Written by Selasetur Íslands
|
|
Thursday, 06 July 2006 10:37 |
|
There are no translations available.
Í maí síðast liðnum var haldið námskeið um sjálfbæra og aðgengilega náttúruskoðun í Húnaþingi og á Ströndum. Námskeiðið var liður í NORCE verkefninu (www.norce.org) og var skipulagt af fulltrúum Byggðasafns Húnvetninga og Strandamanna, SSNV og Selaseturs Íslands.
Einn af fyrirlesurum námskeiðsins vars Carol Patterson, en hún er þekktur ráðgjafi á sviði sjálfbærrar ferðaþjónustu í Norður Ameríku og víðar. Í Alberta í Kanada rekur Carol ráðgjafafyrirtækið Kalahari management (www.kalahari-online.com), en fyrirtækið gefur m.a. út fréttabréf ársfjórðungslega þar sem rædd eru athyglisverð viðfangsefniá sviði sjálfbærrar ferðaþjónustu. Hluti sumartölublaðs fréttabréfsins í ár er tileinkaður ferð Carol til Húnaflóa og upplifunum hennar af náttúru og menningu þar. Sérstaklega tekur hún fyrir heimsókn námskeiðsgesta á Illugastaði og opnun Selaseturs Íslands ásamt því að deila með lesendum reynslu sinni af íslenskum hákarli og brennivíni. Hægt er að nálgast fréttabréfið á síðunni http://www.kalahari-online.com/sum06.pdf Mynd: Carol Pattersson frá Kalahari Management
|
|
Last Updated on Thursday, 06 July 2006 11:09 |