|
Written by Selasetur Íslands
|
|
Wednesday, 10 May 2006 12:24 |
|
There are no translations available.
Dagana 11 13. maí verður haldið á Hvammstanga og Ströndum námskeið um uppbyggingu náttúruskoðunarstaða fyrir ferðamenn. Námskeiðið er haldið í tengslum við NPP verkefnið NORCE - Northern Coastal Experience (Strandmenning) og er opið öllum áhugasömum. Námskeiðið er á ensku og er styrkt af NORA. Í tengslum við námskeiðið verður einnig boðið upp á skoðunarferðir á Vatnsnes og norður á Strandir.
Kennarar á námskeiðinu koma víða að og eru margir hverjir í fremstu röð í sínum fræðum á heimsvísu. Þáttakendur á námskeiðinu verða um 25 talsins frá ýmsum þjóðlöndum. Að námskeiðinu standa Byggðasafn Húnvetninga og Strandamanna, Náttúrustofa Norðurlands vestra, Selasetur Íslands á Hvammstanga og Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra í samvinnu við NORCE verkefnið.
|
|
Last Updated on Wednesday, 10 May 2006 12:27 |