Home
Staff Blog
About us
Research
Exhibitions
Wildlife watching
Seals in Iceland
Vatnsnes
Á selaslóðum
Photos
Links
Sitemap
ÍslenskaDeutsch
 
Stór dagur í Selasetrinu PDF Print E-mail
Written by Selasetur Íslands   
Tuesday, 02 May 2006 16:48
There are no translations available.

Síðasta laugardag skrifaði Selasetur Íslands undir samstarfssamning við samgönguráðuneytið um rekstur upplýsingamiðstöðvar í setrinu, hljóðaði samningurinn upp á 6 milljónir króna. Undir hann skrifuðu Guðmundur Jóhannesson stjórnarformaður og Hr. Sturla Böðvarsson samgönguráðherra. Um leið skrifaði Ferðamálafélag Vestur Húnavatnssýslu undir samninga við Ferðamálastofu vegna úthlutunar styrkja til umhverfisverndar og uppbyggingar ferðaþjónustu. Í ár úthlutaði Ferðamálastofa 40 milljónum króna til þessa málaflokks, en þar af runnu 6,5 milljónir til uppbygginar í Húnaþingi vestra, annars vegar 4 milljónir til uppbyggingar við Selasetur Íslands og hins vegar 2,5 milljónir til uppbyggingar náttúruskoðunarstaða á Vatnsnesi. Undir samninginn skrifuðu Magnús Oddsson ferðamálastjóri og Sigrún B. Valdimarsdóttir formaður Ferðamálafélags Vestur Húnavatnssýslu.

Á vefsíðu Ferðamálastofu má lesa frétt og skoða myndir frá undirskriftinni. (Mynd: Af vef Ferðamálstofu)

 
 
Selasetur Íslands/Upplýsingamiðstöðin á Hvammstanga | Brekkugata 2
Sími: +354 451 2345 | GSM: + 354 898 5233 | Fax: +354 451 2356 | info[hja]selasetur.is