|
Written by Selasetur Íslands
|
|
Wednesday, 16 November 2011 00:00 |
|
Stofnstærðarmat á landsel við Ísland
Talningar á fjölda landsela við Íslandsstrendur fóru fram í júlí til september síðastliðinn á vegum Selaseturs Íslands. Markmið verkefnisins var að afla upplýsinga um stöðu íslenska landselsstofnsins. Þetta er tíunda heildartalning landsela úr lofti sem hefur farið fram hérlendis, en slíkar talningar hófust árið 1980. Ekki hefur þó verið talið síðan árið 2006 og var því mjög brýnt að telja í ár. Talningarnar fóru í ár þannig fram að flogið var yfir alla landshluta allt að þrisvar sinnum og var fjöldi sjáanlegra landsela talin í öllum látrum. Talningar fyrri ára miðuðu að því að fljúga aðeins einu sinni yfir ströndina hvert talningarár. Talningin 2011 er því sú viðamesta sem ráðist hefur verið í til þessa.
Að meðaltali sáust um 4512 landselir, en sú tala er mitt á milli talningarniðurstöðu áranna 2003 og 2006. Þrátt fyrir síminnkandi veiðar landsela benda þessar niðurstöður til þess að landselsstofninn hafi ekki rétt úr kútnum síðan árið 2003. Skýringar á því geta verið margvíslegar, meðal annars er líklegt að slysaveiðar á sel í fiskinet hafi neikvæð áhrif á landselsstofninn.
Samstarfsaðilar verkefnisins voru Veiðimálastofnun, Rannsjá, BioPol og Hafrannsóknarstofnun. Verkefnisstjóri flugtalningarverkefnisins er Sandra Granquist, starfsmaður Veiðimálastofunnar og Selaseturs Íslands, en meðverkefnastjóri og aðaltalningarmaður var Erlingur Hauksson hjá Rannsjá. Í verkefninu tóku einnig þátt Arna Björg Árnadóttir, sumarstarfsmaður Veiðimálastofunnar og Jacob Casper starfsmaður Hafró og BioPol á Skagaströnd. Verkefnið er styrkt af Verkefnasjóð Sjávarútvegsráðuneytisins.
|
|
Last Updated on Wednesday, 16 November 2011 15:17 |