|
Written by Selasetur Íslands
|
|
Monday, 27 June 2011 16:46 |
|
There are no translations available.
Síðan 2007 hefur farið fram árleg selatalning á svæðinu, og mun hún verða framkvæmd aftur í sumar. Selatalningin byggir algjörlega á þátttöku sjálfboðaliða og hefur áhuginn hingað til verið mikill, bæði meðal heimamanna og ferðamanna.
Upprunalega voru bara taldir selir á Vatnsnesinu en þar sem áhugi og þátttaka hefur aukist á milli ára er síðan 2009 allt Heggstaðarnesið talið líka. Svæðið sem talið er á núna er um 100 km langt, en skipt í mörg misstór svæði og eru síðan öll svæðin talin á sama tíma. Flestir ættu að geta fundið sér svæði við sitt hæfi, hvort sem á við fjölskyldufólk í leit að léttri göngu í fjörunni eða íþróttagarpar að leita að erfiðri gönguferð (tekið skal fram að talningin hentar ekki börn undir 5 ára og börn mega bara taka þátt í fylgd forráðamanna). Stystu svæðin verða u.þ.b. 2 km löng og þau lengstu um 7 km.
Við hvetjum heimamenn sem aðkomumenn að taka þátt í Selatalningunni miklu.
Talning fer fram þann 17. Júlí í ár og nauðsynlegt er að skrá þátttöku sína fyrirfram annaðhvort með því að senda tölvupóst á
This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it
eða með því að hringja í síma 451-2345. Nákvæm tímasetning auglýst síðar.
|
|
Last Updated on Monday, 27 June 2011 17:05 |