Home
Staff Blog
About us
Research
Exhibitions
Wildlife watching
Seals in Iceland
Vatnsnes
Á selaslóðum
Photos
Links
Sitemap
ÍslenskaDeutsch
 
Sumaropnun og flutningar PDF Print E-mail
Written by Selasetur Íslands   
Thursday, 23 June 2011 11:49
There are no translations available.

15. maí síðastliðin opnaði Selasetrið aftur eftir vetrarlokunina. Frá 1. Júní og út ágúst verður opið á milli 9 og 17 alla daga. Í sumar verðum við með 5 sumarstarfsmenn, auk heilsársstarfsfólk. Í móttöku Selasetursins verða Benóný Þór Björnsson og Unnur Helga Marteinsdóttir. Arna Björg Árnadóttir, líffræðingur, verður til aðstoðar við líffræðirannsóknir á sel ásamt því að leysa af í móttöku. Eva Haunss sem er líffræðingur frá Þýskalandi og Elsa Freschet sem er líffræðingur frá Frakklandi munu einnig starfa sem aðstoðarrannsóknarmenn við selarannsóknirnar.

Eins og áður hefur komið fram mun sýning Selasetursins, upplýsingamiðstöðin og rannsóknaraðstaðan  flytja sig um set í sumar og taka nýtt húsnæði í notkun. Þessa dagana er unnið hörðum höndum við að koma húsnæðinu í lag, bæði að innan sem og utan.Áætlað er að flytja inn í núja húsnæðið í byrjun Júlí. Frekari fréttir af flutningum munu koma inn á þessa síðu eftir því sem nær dregur flutningum.

 

framkv_husid_small

Mynd: Framkvæmdir

 
 
Selasetur Íslands/Upplýsingamiðstöðin á Hvammstanga | Brekkugata 2
Sími: +354 451 2345 | GSM: + 354 898 5233 | Fax: +354 451 2356 | info[hja]selasetur.is