|
Written by Selasetur Íslands
|
|
Thursday, 23 June 2011 11:12 |
|
There are no translations available.
Í siðastu viku fór fram selamerkingar á vegum Selaseturs Íslands og Veiðimálastofnunar. Í ár voru 11 selir merktir með útvarpssendum, í fyrra voru einnig 5 selir merktir. Merkingarnar eru liður í verkefninu „Áhrif sela á laxfiska“. Markmið verkefnisins í heild er að ákvarða áhrif sela sem dvelja á ósasvæðum á laxfiska með því að rannsaka hegðun sela við fæðuöflun, ásamt því að kanna hvað þeir hafa étið. Merkingarnar munu gefa upplýsingar um hreyfimynstur sela í kringum ósasvæðin,og svara spurningum um hversu oft selir koma inn á svæðið og hvað þeir stoppa lengi í einu.
Hvernig virkar þetta?
Móttökustöð er sett upp nálægt ósasvæðunum. Selir eru síðan veiddir í net og merkið er svo límt á höfuð þeirra. Selirnir eru einnig merktir með kúa merki (eyrnamerki) í afturhreifa, til þess að gefa okkur kost á að þekkja seinna hvaða einstaklingar hafa áður verið merktir. Þegar merktir selir koma inn á ósasvæðin við Bjargós eða Sigríðarstaðaós nemur móttökustöðin merki frá útvarpssendum og gögn um viðveru þeirra skráist í stöðina. Gögn úr móttökustöðinni eru síðan sótt til úrvinnslu. Þegar merktir selir fara úr hárum að hausti detta útvarpsmerkin af þeim og þeir halda áfram að lifa eðlilegu lífi. Hér að neðan má sjá myndir af merkingunni. Verkefnisstjóri rannsóknarinnar er Sandra Granquist (dýraatferlisfræðingur), starfsmaður Veiðimálastofnunar og Selasetur Íslands. Halldór Pálsson, bóndi á Súluvöllum, aðstoðaði við að veiða selina og lánaði okkur netin. Guðmundur Jóhannesson lánaði okkur bátinn sinn. Í verkefninu tók einnig sumarstarfsfólið okkar Arna Björg Arnadóttir, Elsa Freschet frá Frakklandi og Eva Haunss frá Þýskalandi þátt. Stefán Helgi Pálsson og Jón Harry Njarðarsson aðstoðaði við að veiða seli.
Mynd: Kúamerki í afturhreif (Myndataka Frank Brandford).

Mynd: Útvarpsmerkið, sem er 22g þungt (Myndataka: Frank Bradford).

Mynd: Merktur selur með útvarpsmerki og kúamerki (Myndataka; Sandra Granquist).

Mynd: Merktur selur á leiðinni "heim" (Myndataka; Sandra Granquist)
|
|
Last Updated on Monday, 27 June 2011 17:05 |