Home
Staff Blog
About us
Research
Exhibitions
Wildlife watching
Seals in Iceland
Vatnsnes
Á selaslóðum
Photos
Links
Sitemap
ÍslenskaDeutsch
 
The Wild North hlýtur norræna styrki PDF Print E-mail
Written by Selasetur Íslands   
Wednesday, 01 July 2009 15:15
There are no translations available.

illugastadir2_litilÍ ár er fyrsta verkefnisár alþjóðlega samstarfsverkefnisins The Wild North eða Hins villta norðurs, en undirbúningur þess hefur staðið yfir síðan í byrjun árs 2007. Undanfarna mánuði hefur verið unnið ötullega að fjármögnun verkefnisins, bæði hér heima og erlendis og er sú vinna nú að bera árangur því nýverið tilkynntu bæði NATA (North Atlantic Tourism Association) og NORA (Norræna Atlantsnefndin) um styrki til verkefnisins. Samtals hljóða styrkirnir upp á 450.000 danskar krónur eða 10.820.000 íslenskar. NATA veitti 100.000 DKK til ferðakostnaðar vegna sameiginlegra funda- og námskeiðshalda í Færeyjum í október í ár, en þar þátttökuaðilum á verkefnissvæðinu boðið upp á námskeið í rekstri sjálfbærra ferðaþjónustufyrirtækja. NORA veitti 350.000 til þriggja námskeiða á verkefnistímanum (2009 - 2011), en auk fyrrgreinds námskeiðs verða haldin námskeið í Leiðsögn um svæði villtra dýra (2010) og Markaðssetningu á veraldarvefnum (2011).

Að auki hefur Vaxtarsamningur Norðurlands vestra veitt 3.000.000 kr styrk til þátttakenda á Norðvesturlandi árið 2009 og Ferðamálastofa 500.000 króna styrk til uppsetningu upplýsingaskilta á áfangastöðum verkefnisins víða um land (Vatnsnes, Hornstrandir, Skagaströnd og Húsavík).

Sumarið 2009 vinnur Helgi Guðjónsson líffræðinemi við atferlisrannsóknir á selum á Illugastöðum í tengslum við verkefnið.

Mynd: Selir við Illugastaði

Last Updated on Wednesday, 01 July 2009 15:40
 
 
Selasetur Íslands/Upplýsingamiðstöðin á Hvammstanga | Brekkugata 2
Sími: +354 451 2345 | GSM: + 354 898 5233 | Fax: +354 451 2356 | info[hja]selasetur.is