|
There are no translations available.
Nú er sumarið á enda. Seinasti vinnudagurinn hjá mér er liðinn og á meðan þú lest þetta er ég að gera mig líklegan til að byrja aftur í skólanum. Sumarið hefur bara verið nokkuð gott, skemmtileg vinna, gott samstarfsfólk og gott veður (allavegana að mestu leiti). Selatalning í lok júlí heppnaðist nokkuð vel, og taldir voru rúmlega 1000 selir. Unglistarhátiðin (Eldur í Húnaþingi), sem var seinustu helgina í júlí, heppnaðist vel að mínu mati, mikið af fólki á svæðinu og nóg af skemmtiefni, s.s. hinir árlegu tónleikar í Borgarvirki, tónleikar með Dikta, ball og ýmislegt fleira.
Ágúst hefur verið alveg ágætur, hann fór af stað með rosalega góðu veðri en seinustu vikuna hefur verið heldur grátt yfir, og stöku vatnsdropar. Ferðamannatímabilið virðist vera nánast komið að lokum, sem dæmi má nefna að í fimmtudaginn 26. ágúst komu ekki nema 20 ferðamenn inn til okkar, aðallega í upplýsingaleit. Fjöldi gesta þetta sumarið er kominn upp í u.þ.b. 5800 manns, og það má búast við að eitthvað bætist við í september. Opnunartíminn verður styttur í september, og verður þá opið á milli 10-14 á virkum dögum, svo að enn er hægt að líta inn ef einhver verður á ferðinni í september.
Annars vil ég bara þakka fyrir mig, þetta sumar hefur verið mikil og góð lífreynsla og ég tel mig hafa lært heilan helling í sumar.
Kv. Benóný Þór Björnsson
Tags:
|