|
There are no translations available.
Mér finnst alveg ótrúlegt að sumarið sé að verða búið því það hefur liðið svo hratt! Ég ætla að segja ykkur frá því sem að mínu mati stendur mest upp úr sumrinu.
Stærsti viðburður sumarsins hér á setrinu var að sjálfsögðu Selatalningin mikla þann 25. júlí. Ég taldi frá merkjum Bálkastaða/Bessastaða að Sæbóli. Það var mjög gott veður þann dag, sól og blíða. Talningin byrjaði vel hjá mér, ég sá sel eftir að hafa gengið í aðeins 10 mínútur. Ég var viss um að ég myndi telja fjölmarga seli. Síðan gékk ég í 5 mínútur í viðbót.. svo 15 mínútur.... svo 45 mínutur... næsta sel taldi ég ca klukkutíma síðar en ég taldi þann fyrsta. Mér fannst ég hafa gengið óþarflega lengi til einskis. Síðan fór nú selunum að fjölga sem ég sá og lokatala mín var 14 selir og það tók mig ekki nema 3 tíma að labba þessa vegalengd. Ég var frekar þreytt að talningu lokinni enda hafði ég skellt mér á ball kvöldinu áður og var kannski ekki í besta ástandinu fyrir 3 tíma labb ;) En það er gaman að vita að það töldust fleiri selir en í fyrra sem eru bara góðar fréttir fyrir ferðamennina sem og starfsfólk setursins.
Ég hef haldið áfram að fara með selaskoðunarbátnum Brimli nánast daglega til að telja selina sem báturinn "sér". Þessar bátsferðir brjóta skemmtileg upp daginn hjá mér. Ég er með fáránlega flottar græjur í talninguna, svo góðan kíki að ég get talið fellingarnar á selunum og þar að auki er ég með fjarlægðarmæli. Það næsta sem við höfum komist selunum eru 38 metrar!!! Það er bara nokkuð gott! Það getur verið alveg ótrúlega fyndið að sjá hvernig selirnir flatmaga á steinunum og kippa sér varla upp við bátinn og fólkið á honum. Við höfum séð selamömmu siða til kópinn sinn, útsel sem hefur flutt inn á landselina, smávægileg áflog milli brimla og það skemmtilegasta var þegar við sáum einn selinn leika sirkuslistir fyrir okkur. Sá selur stökk upp úr sjónum og lék það eftir nokkrum sinnum. Að sjálfsögðu varð allt vitlaust á bátnum af gleði :)
Vinnan hér á Selasetrinu hefur verið afar skemmtileg og lærdómsrík. Fyrir utan að vera komin með nördisma fyrir selum þá hef ég kynnst góðu samstarfsfólki og lært meira um eigin heimabyggð. Njótið restarinnar af sumrinu blómin mín og sjáumst vonandi á Selasetrinu eða á Brimli.
Selaknús, Sigurrós
Tags:
|