|
There are no translations available.
Jæja, þá fer að koma að lokum sumars og margt hefur gerst hérna í Húnaþingi vestra.
Við erum bún að vera mjög heppin með veður í seinni part júlí og byrjun ágúst. Sól og vel yfir 20 stiga hiti dag eftir dag.
Um verslunarmannahelgi var mikil umferð um Selasetrið og alltaf finnst mér jafn skemmtilegt að sjá hve margir íslendingar koma að heimsækja okkur.
Myndlista og bókagerða sýningin “Grafík og Skræður” eftir Guðlaugu Friðriksdóttur var í Selasetrinu mest allan júlí og fengu margir foreldrar hugmynd frá sýningunni um að láta börnin sín sem voru að nálgast fermingaraldurinn búa til sína eigin gestabók. Þar á meðal var einn faðir sem ætlaði að láta drenginn sinn prjóna kápuna á gestabókinna.
Síðan verð ég að segja frá því að Selasetrið fékk nýlega nýja liti á boli í barnastærð og hefur bolasalan rokið upp úr öllu valdi.
Unglistarhátíðin Eldur í Húnaþingi var haldin á Hvammstanga 22 – 25 ágúst og skreyttu heimamenn göturnar sínar og bóndabæi í fyrirfram ákveðnum litum. Flestir lögðu sig mikið fram og var bærinn og sveitin fagur gul, rauð, græn og blá. Þetta kom erlendum ferðamönnum skemmtilega á óvart og fékk ég margar fyrirspurnir um hvað væri í gangi.
Grettishátíð í Grettisbóli fór fram á Laugarbakka þann 7 – 8 ágúst og voru víkingabúðir, mismunandi víkingarnámskeiði og víkingamarkaður fyrir gesti og gangandi. Hina árlega aflraunakeppni fór fram á laugardeginum með pompi og prakt og var góð þáttaka.
Núna hvet ég alla þá sem ekki hafa komið í heimsókn og eiga leið framhjá að kíkja á Selasetrið áður en við lokum fyrir veturinn. Í september verður opið frá 10 – 14 alla daga annars er alltaf hægt að opna setrið samkvæmt samkomulagi.
Ég vona að sumarið sé búið að vera ykkur ánægjuríkt og að þið njótið síðustu daga sumarsins með bros á vör.
Kveðja, Karólína.
Tags:
|