|
There are no translations available.
Sæl veriði!
Nú er sumarið hálfnað og því kominn tími til að fara yfir hvað hefur gengið á undan.
Tvær listasýningar hafa komið og farið, og sú þriðja er í gangi, en sú sýning ber nafnið Grafík og skræður, og er samblanda af myndlistasýningu og sýningu á bókbandi.
Fjöldi heimsókna í Selasetrið hefur aukist hægt og örugglega, frá þeim 2-3 einstaklingum sem komu á dag þegar ég byrjaði að vinna hér í maí, upp í að nú eru að koma til okkar frá 50 upp í 100 manns á dag. Einnig hefur Selasetrið fengið nokkra athygli í sumar, bæði hef ég fengið til mín leiðsögumenn sem hafa viljað fræðast um safnið til þess að geta komið með hópa, og einnig kom til mín hún Steinunn Harðardóttir, sem sér um útvarpsþáttinn Út um græna grundu á Rás 1, og tók viðtal við mig sem var síðan útvarpað í þætti hennar. Hægt er að lesa um þáttinn og hlusta hér.
Óðum styttist í Selatalninguna miklu, en hún er dagsett sunnudaginn 25. júlí og hvet ég alla sem hafa áhuga á að leggja hönd á plóg að hafa samband við okkur á Selasetrið.
Annars er það nú ekki fleira sem ég hef frá að segja eins og er og enda þá á því að hvetja sem alla flesta að leggja leið sína til Húnaþings vestra.
Benóný Þór
Tags:
|