|
There are no translations available.
Það er alltaf nóg um að vera í Selasetrinu og ekki vantar strauminn af bæði íslenskum og erlendum ferðamönnum sem streyma inn á hverjum degi. Við reynum að fá sem flesta erlenda ferðamenn til að svara stuttri könnun fyrir okkur, í könnuninni eru ýmsar almennar spurningar og einnig er spurt um áhugasvið þeirra á Íslandi, hvort þeir hafi komið áður, vilji koma aftur að vetri til og hvernig Íslandsferðin hafi til tekist svo einhvað sé nefnt.
Við höfum fengið mjög jákvæð svör frá ferðamönnunum. Einnig hafa þeir kost á því að útskýra áhuga sinn á selum í þessari könnun. Mjög margir taka það fram að selir séu sætir, fallegir eða skemmtileg dýr sem gaman er að fylgjast með. Aðrir nefna að það séu ekki selir í þeirra heimalandi og þess vegna finnist þeim selir svo spennandi. Flest svörin eru á þá leið að þeir hafi jákvæða skoðun á selum og þeim finnst stórkostlegt að geta séð þá í sínu náttúrulega umhverfi en ekki aðeins í dýragörðum eins og oft erlendis.
Einnig er farið að senda starfsmann Selasetursins (mig) með selaskoðunarbátnum Brimli til að kanna hvernig selirnir bregðast við návist manna af sjó. Enn sem komið hef ég ekki farið margar ferðir með Brimli en stefnan er tekin á að fara með þeim 2-3 ferðir í viku. Þessar selaskoðunarferðir með Brimli hafa svo sannarlega slegið í gegn hjá ferðamönnunum. Við á Selasetrinun erum dugleg að benda ferðafólkinu á þessar ferðir enda eru þær mjög skemmtilegar. Hver ferð tekur u.þ.b. 2 tíma og eftir að hafa fylgst með selunum þá fá allir heitt kakó og bakkelsi. Gæti ekki verið betra :)
Að lokum við ég segja hversu ánægjulegt það er að sjá alla þá Íslendinga sem leggja leið sína á Selasetrið. Gaman er að sjá áhugann hjá börnunum og oft fáum við auka fróðleik frá eldri kynslóðinni sem hefur ef til vill meiri reynslu og aðra þekkingu af selum, selveiðum, matreiddum sel og fleira en við höfum. Alltaf er gaman að auka innistæðuna í þekkingabankanum sínum :)
Takk fyrir mig og sjáumst á Selasetrinu kveðja, Sigurrós
Tags:
|