|
There are no translations available.
Heil og sæl öll sömul,
Núna er Selasetrið búið að vera opið í aðeins meira en mánuð og gestagangur í júní var meiri í ár en í fyrra. Þannig að hvorki eldgosið né kreppan er að hafa mikil áhrif á ferðamannastrauminn hér fyrir norðan.
Það er alltaf gaman að sjá hve margir íslendingar hafa áhuga á að kíkja á safnið og hafa þeir verið að koma í tugatali á hverjum degi;)
Mikill áhugi er á Íslandi þessa dagana og höfum við fengið kvikmyndamenn, blaðamenn og rithöfunda í heimsókn til að fræðast um safnið og selina hér í nágreninu.
Einnig hef ég hitt marga gesti sem hafa sagt mér frá eigin reynslu af selum og er alltaf gaman að fá að heyra þeirra sögur og fræðast um hvernig selurinn hélt í þeim líf hér árum áður. Þannig að ef þið hafið eitthverjar skemmtilegar eða fræðandi sögur um seli eða myndir endilega sendið okkur tölvupóst eða komið og segið okkur frá og það er aldrei að vita hvort að við hengjum þær upp á vegginn hjá okkur í sumar.
Fyrir stuttu opnaði listakonan Edda Lilja Guðmundsdóttiruna sýninguna "52 húfur á 52 vikum" og hefur hún vakið mikla lukku meðal gesta. Erlendir ferðamenn hafa spurt hvort að mögulegt væri að kaupa eina og eina húfu en ég hef benda þeim að kíkja í Kidka í staðinn.
María Sigurðardóttir opnaði síðan rosalega kósý Kaffihús hér við hliðina á okkur fyrir stuttu sem heitir Hlaðan og hefur verið stanslaus straumur þangað inn af ferðamönnum jafnt og heimamönnum. Heimagerða súpan og heimabakaða brauðið hennar Maríu hefur verið að halda lífi í okkur hér á Selastrinu ;)
Síðan hvet ég alla að kíkja til okkar á safnadaginn 11. júlí þar sem það verður ókeypis aðgangur.
Munið síðan essin þrjú:
SUMAR, SVEITASÆLA, SELASETUR
Kveðja Karólína
Tags:
|