|
There are no translations available.
Hugur okkar allra er hjá fólkinu í nágrenni gossins í Eyjafjallajökli sem á á hættu að missa allt sitt og enn á ný erum við minnt harkalega á að náttúran lýtur engum mannlegum lögmálum, hún verður ekki tamin. Hér norðan heiða veltir fólk fyrir sér hver áhrifin verða ef við taka suðlægar áttir. Hvaða áhrif mun öskufallið t.d. hafa á sumarbeit bæði sauðfjár og hrossa á heiðunum?
Ferðaþjónustuaðilar víða um land eru uggandi um áhrif gossins á komandi vertíð en ljóst er að ef gosið verður langvinnt mun það hafa gífurleg áhrif á afkomu margra. Fyrst og fremst snúa áhyggjurnar af því hvort að erlendir ferðamenn komi yfir höfuð til landsins, en á þeim byggir Selasetrið meiri hluta innkomu sinnar yfir sumartímann.
Kveðja, Hrafnhildur
Tags:
|