Home
Staff Blog
About us
Research
Exhibitions
Wildlife watching
Seals in Iceland
Vatnsnes
Á selaslóðum
Photos
Links
Sitemap
ÍslenskaDeutsch
 
Selasetur Íslands
Búið að ráða í sumarstörfin
2010.04.06 16:45:23
There are no translations available.

Jæja þá erum við Sandra búnar að liggja yfir umsóknum og ganga frá ráðningum fyrir sumarið. Við hlökkum til að takast á við sumarið með frábæru nýju starfsfólki. Helstu nýjungarnar hjá okkur eru þær að í stað þess að ráða í 2 fullar stöður í afgreiðslu og upplýsingamiðstöð réðum við í eina fulla stöðu þar og bjuggum til eina blandaða stöðu þar sem viðkomandi sinnir bæði móttöku ferðamanna og tekur þátt í rannsóknarstarfi setursins. Þar að auki er svo ein ný rannsóknarstaða á sviði náttúrutengdrar ferðaþjónustu. Alls verðum við því 8 talsins í fullri vinnu í sumar.

Undanfarið hef ég unnið með honum Þorsteini á Náttúrustofu Norðurlands vestra við að undirbúa Dag húnvetnskrar náttúru. Þar koma ýmsir fræðimenn og kynna rannsóknir sínar á húnvetnskri náttúru og ýmsu henni tengdu. Dagskráin er fjölbreytt og mjög metnaðarfull og ég hlakka mikið til dagsins. Að dagskrá lokinni bjóðum við svo ráðstefnugestum í nokkurs konar afmælisupphitun í Selasetrinu, en í ár verður setrið 5 ára gamalt og Náttúrustofan 10 ára. Við ætlum okkur svo að halda aðra veglega afmælisveislu þegar að nær dregur sumri þar sem allir verða boðnir.

Ég sé fram á frábært sumar...ef ég kemst einhvern tíman að heiman fyrir snjó þ.e.a.s. :)

kveðja, Hrafnhildur

 




Tags:


 

Reply this post
Username:

E-mail:




 
Selasetur Íslands/Upplýsingamiðstöðin á Hvammstanga | Brekkugata 2
Sími: +354 451 2345 | GSM: + 354 898 5233 | Fax: +354 451 2356 | info[hja]selasetur.is