Home
Blog
Über uns
Rannsóknir / Skýrslur
Die Ausstellung
Wildlife watching
Robben an Island
Vatnsnes
Á selaslóðum
Photos
Links
Sitemap
ÍslenskaEnglish
 
Sumardagskrá PDF Drucken E-Mail
Geschrieben von: Selasetur Íslands   
Dienstag, 29. Juni 2010 um 15:37 Uhr
There are no translations available.

Sumardagskrá Selaseturs Íslands 2010

Í ár fagnar Selasetur Íslands 5 ára starfsafmæli sínu með glæsilegri sumardagskrá, þar sem á boðstólnum eru fjölbreyttar listsýningar og námskeið auk Selatalningarinnar miklu sem enginn má láta framhjá sér fara.


Öldur – Waves (6. – 25. júní) – Sýning
Sýning Önnu Gunnarsdóttur textílhönnuðar. Anna notar tækni sem frumbyggjar Ameríku og fleiri þjóðflokkar nota við körfugerð til að vefja sjóinn úr þráðum og líkja eftir þeim krafti  sem hann hefur. Anna hefur haldið sýningar víða um heim og var valin bæjarlistamaður Akureyrar árið 2008.


52 húfur á 52 vikum (26. júní – 10. júlí) – Sýning og námskeið
Edda Lilja Guðmundsdóttir textíllistakona hafði það að markmiði að gera eina húfu á viku í eitt ár. Engar tvær húfur máttu vera eins, í þær mátti aðeins nýta garn sem hún átti í byrjun árs og allar voru hannaðar af henni sjálfri.

“Heklaðu uppúr þér” (Laugardaginn 3. júlí frá kl. 09.00 – 12:00 og 13:00 – 16:00)
Þann 3. júlí mun Edda Lilja bjóða upp á námskeið þar sem kenndar eru grunnaðferðir í hekli; fastapinnar, stuðlar, loftlykkjur, dúllur, heklað í hringi o.s.frv.  Fyrir hádegi eru kenndar grunnaðferðir í gegnum vettling en eftir hádegi ýmsar aðferðir til skrauts t.d. blóm og dúllur. Verð fyrir ½ dag er krónur 4.000 en 8.000 fyrir heilan dag. Garn er á staðnum en þátttakendur eru beðnir um að koma með heklunálar af stærð ca. 4 ½ og 3.0. Skráningarfrestur er til miðvikudagsins 30. júní á netfangið Diese E-Mail-Adresse ist gegen Spambots geschützt! Du musst JavaScript aktivieren, damit Du sie sehen kannst. eða í síma 451 2345. Hámarksfjöldi er 6 en lágmark 4. Fyrstur kemur fyrstur fær!


Grafík og skræður (11. júlí – 4. ágúst) – Sýning og námskeið
Á þessari sýningu tengir Guðlaug Friðriksdóttir myndlistarkona saman í flæði pappír, striga og liti í myndlist og bókagerð.

Psychic art og bókagerð
Markmið námskeiðsins er að gefa nemendum innsýn í þessa ólíku, en þó ekki svo ólíku heima og að leyfa sköpunargáfunni að flæða í litum og pappír. Kennd verður japönsk bókagerð og listagyðjunni leyft að leika sér í Psychic art og nemendum gefnar svolítið frjálsar hendur um það hvorn hlutann þeir vilja leggja áherslu á. Kennarar eru Guðlaug Friðriksdóttir og Sigrún Gunnarsdóttir. Verð er krónur 15.000 og miðast við 10 tíma kennslu. Kennslutímar eru 10. júlí frá 13:00 – 17:00 og 11. & 12. júlí frá 19:30 – 22:00. Skráningarfrestur er til miðvikudagsins 7. júlí á netfangið Diese E-Mail-Adresse ist gegen Spambots geschützt! Du musst JavaScript aktivieren, damit Du sie sehen kannst. eða í síma 451 2345.


Selatalningin mikla – sunnudaginn 25. júlí
Sjálboðaliðar telja seli meðfram ströndinni frá Hrútafirði inn að botni Sigríðastaðavatns. Við hvetjum alla til að koma og taka þátt í þessum viðburði sem er einstakur á heimsvísu. Veitingar að talningu lokinni. Mæting í Selasetrið kl. 13:30.
 

7. ágúst – 28. ágúst
Opnun sýningar á verkum Ingibjargar Sigurðardóttur myndlistarkonu.


Hlökkum til að sjá ykkur! Starfsfólk Selaseturs Íslands

Zuletzt aktualisiert am Mittwoch, 30. Juni 2010 um 10:04 Uhr
 
 
Selasetur Íslands/Upplýsingamiðstöðin á Hvammstanga | Brekkugata 2
Sími: +354 451 2345 | GSM: + 354 898 5233 | Fax: +354 451 2356 | info[hja]selasetur.is